Sjálfsmynd og ímynd Dalabyggðar til umfjöllunar á Rás 1

SSVFréttir

Þátturinn Víðsvegar á Rás 1 fór í loftið í mars á þessu ári og var fyrsti þátturinn tekinn upp í Dölunum. Þann 3. júní síðastliðinn voru rifjaðar upp glefsur úr þáttum vetrarins og m.a. tekið viðtal við Lindu Guðmundsdóttir, verkefnisstjóra DalaAuðs ásamt því að rætt er við Ingibjörgu Þórönnu Steinudóttur, frumkvöðul og eiganda Urðar ullarvinnslu í Dalabyggð.

DalaAuður er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Dalabyggðar og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og hefur verið starfrækt frá árinu 2022. Markvisst hefur verið unnið á að því að efla ímynd og miðla grósku og gæðum Dalabyggðar síðustu ár og fengu SSV og Dalabyggð styrk úr potti Byggðaáætlunar til þess að vinna að því verkefni. Í þættinum fjallar Linda um það hvernig hún og fleiri sem að verkefninu starfa hafa nálgast viðfangsefnið.

Þáttinn má hlusta á hér

Til að hlusta á fyrsta þáttinn þar sem rýnt var í sjálfsmynd og ímynd í Dölunum er hægt að fylgja þessari slóð

Linda Guðmundsdóttir verkefnastjóri DalaAuðs, verkefni brotthættra byggða í Dalabyggð.