Nýsköpun blómstrar á Vesturlandi, en það sést m.a. á því hversu margir sinna vöruþróun og/eða hafa tekjur af skapandi greinum. Flest fyrirtæki á Vesturlandi telja sóknarfæri í samfélagsmiðlum, samstarfi við önnur fyrirtæki og stofnanir og markaðssókn. Fæst fyrirtæki segja nýja staðsetningu eða óstaðbundin störf vera sóknarfæri. Af þeim verkefnum sem eru á ábyrgð hins opinbera eru vegakerfið, Mast og Rammaáætlun frekar til þess fallin að draga úr þrótti atvinnulífsins að mati fyrirtækja á Vesturlandi á meðan góðar nettengingar, farsímasamband og þjónusta landshlutasamtakanna standa frekar með því. Hægt er að kynna sér Glefsuna hér.
