Eva Michelsen fjallar um verðlagningu á viðburðinum Forvitnir frumkvöðlar

SSVFréttir

Næsti viðburður í röðinni Forvitnir frumkvöðlar fer fram 5. maí kl. 12:00, þar sem frumkvöðullinn Eva Michelsen stígur á svið og deilir þekkingu sinni og reynslu.

Eva er með MSc í stjórnun og stefnumótun og BSc í viðskiptafræði, auk þess að vera viðurkenndur bókari með yfir áratugareynslu af rekstri fyrirtækja og bókhaldi. Hún er jafnframt raðfrumkvöðull og kemur að rekstri fjölbreyttra verkefna, þar á meðal Rassvasa bókhaldsstofu, Eldstæðisins deilieldhúss og umboðssölunnar viravirki.is. Þá hefur hún einnig lagt stund á konfekt- og kökugerð af miklum áhuga.

Í erindi sínu mun Eva beina sjónum að einu algengasta vandamáli sem sjálfstætt starfandi einstaklingar standa frammi fyrir – verðlagningu á eigin þjónustu og vörum. Hún mun fara yfir helstu mistök sem gerð eru í verðákvörðunum og útskýra hvernig hægt er að nálgast verðlagningu á raunhæfan hátt sem styður við sjálfbæran rekstur.

Efni erindisins byggir bæði á eigin reynslu Evu og reynslu viðskiptavina hennar sem hafa þurft að taka krefjandi ákvarðanir til að halda rekstri á floti. Markmiðið er að veita þátttakendum aukið öryggi í eigin verðlagningu og draga úr þeirri áhættu sem fylgir því að vanrukka.

Viðburðurinn er hluti af röðinni Forvitnir frumkvöðlar, þar sem áhersla er lögð á að miðla hagnýtri þekkingu og reynslu úr heimi frumkvöðla og reksturs.

Viðburðurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Ekki missa af þessu spennandi og hagnýta erindi á teams.
Skráningar á viðburðinn er ekki þörf, en hér er hlekkur inná fundinn