Vesturland á Nýsköpunarvikunni

SSVFréttir

Nýsköpunarvikan eða Innovation Week stóð yfir í síðustu viku í Reykjavík. Um er að ræða árlegan viðburð sem er stærsta nýsköpunarhátíð landsins þar sem boðið er upp á fjölbreytta viðburði víðs vegar um borgina.

Landshlutasamtökin ásamt Byggðastofnun stóðu fyrir hliðarviðburði í Grósku þann 28. apríl þar sem nýsköpun á landsbyggðinni var í sviðsljósinu. Viðskiptahraðallinn Startup Landið var kynntur en það er sameiginlegur hraðall fyrir allt landið þar sem lögð er áhersla á nýsköpun og frumkvöðlastarf sem þrífst um allt land. Hann hefur verið keyrður einu sinni og hefst að nýju í haust. Markmiðið með viðburðinum var að kynna það stuðningsumhverfi sem stendur sprotum til boða á landsbyggðinni, skapa tengsl við frumkvöðla, fjárfesta og aðra hagaðila og skapa umræðuvettvang um hvernig megi efla nýsköpun utan höfðuborgarsvæðisins.

Á viðburðinum í Grósku voru m.a. kynningar frá sprotum af landsbyggðinni. Tvö frumkvöðlaverkefni af Vesturlandi voru kynnt; annars vegar Mundialis sem eru grænmetisframleiðendur á Mýrunum sem eru að þróa aðferð til að frostþurrka aukaafurðir grænmetis til nýtingar í matvæli og hins vegar Grammatek sem er máltæknifyrirtæki á Akranesi sem hefur undanfarin ár unnið að þróun talgervislausna.

Auk þessa viðburðar voru landshlutasamtökin með sameiginlegan kynningarbás á aðalsvæði nýsköpunarvikunnar í Austurbæ 29. apríl þar sem hægt var að kynnast nánar nýsköpunarumhverfinu víða um land.

Með þátttöku og sýnileika SSV á Nýsköpunarvikunni leggur SSV áherslu á að styrkja tengsl innan stuðningsumhverfis nýsköpunar á Íslandi og efla og styðja við  þau tækifæri sem eru til staðar á Vesturlandi.

Hrafnhildur Tryggvadóttir atvinnuráðgjafi hjá SSV, Anna Björk Nikulásdóttir frá Grammatek og Páll Snævar Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV Hrafnhildur Tryggvadóttir atvinnuráðgjafi hjá SSV, Anna Björk Nikulásdóttir frá Grammatek og Páll Snævar Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV Eyrún Eyþórsdóttir frá Mundialis að kynna verkefnið en Mundialis. Eyrún Eyþórsdóttir frá Mundialis að kynna verkefnið um malað frostþurrkað grænmeti frá Leirulækjarseli á Mýrum. Anna Björk Nikulásdóttir frá Grammatek að kynna verkefnið en Grammatek er máltæknifyrirtæki á Akranesi með starfsstöð í Nýsköpunarsetrinu Breið. Anna Björk Nikulásdóttir frá Grammatek að kynna verkefnið en Grammatek er máltæknifyrirtæki á Akranesi með starfsstöð í Nýsköpunarsetrinu Breið. Helga Guðjónsdóttir atvinnuráðgjafi hjá SSV ásamt Dagný Maddýjar frá Heklan og þeim Geir og Önundi frá Cannartica. Helga Guðjónsdóttir atvinnuráðgjafi hjá SSV ásamt Dagný Maddýjar frá Heklan og þeim Geir og Önundi frá Cannartica.