Starfsfólk SSV með starfsdag

SSVFréttir

Starfsfólk SSV hélt starfsdag í lok apríl á Snæfellsnesi.  Hópurinn byrjaði á því að hittast á Miðhrauni þar sem haldin var starfsmannafundur og farið yfir ýmis mál. Þar á meðal var farið yfir verkefnin sem SSV er að vinna að eins og Gott að eldast, Farsæld barna og Hver vegur að heiman er vegurinn heim.  Á fundinum var Laufeyju Jónsdóttur þakkað fyrir samstarfið, en hún hefur verið tengiráðgjafi í verkefninu Gott að eldast og lét af störfum þann 30 apríl.
Eftir fund var hoppað var upp í rútu og lá leiðinn að fjörunni á Ytri-Tungu og rölt aðeins um svæðið. Hópurinn heimsótti Ragnhildi Sigurðardóttir þjóðgarðsvörð hjá Snæfellsjökulsþjóðgarði og fékk góða leiðsögn og fræðslu um þjóðgarðsmiðstöðina á Hellissandi. Leiðin lá því næst í Grundarfjörð og fékk hópurinn að fara í kaffiskóla og bragðlauksþjálfun hjá kaffi sérfræðingum hjá kaffibrennslunni Valería. Dagurinn kláraðist svo á Miðhrauni þar sem hópurinn snæddi kvöldmat saman.