Fræðsluferð til Kaupmannahafnar og Malmö

SSVFréttir

Í vikunni 13.-17.apríl sl. fóru níu starfsmenn í frístundaþjónustu á Vesturlandi með starfsfólki Flotans-flakkandi félagsmiðstöðvar til Kaupmannahafnar og Malmö að skoða félagsmiðstöðvar og annað skipulagt frístundastarf. Farið var í  Vesterbro Ungdomsgård í Kaupmannahöfn og Ungdomenshus í Malmö þar sem fram fer víðtækt frístundastarf fyrir börn og ungmenni. Húsin eru vel búin og bjóða uppá ýmsa möguleika til afþreyingar. Gott er að nefna að á báðum stöðum er aðstaða fyrir ungt tónlistarfólk til að æfa sig og taka upp tónlist.
Við fórum líka í hverfið Hyllie og fengum kynningu á verkefninu „Unga minds“ í Malmö sem er samfélagsverkefni og byggir á stórum hluta á fótbolta en líka öðrum íþróttum og félagsstarfi fyrir krakka í viðkvæmari hverfum. Þar er lögð áhersla á jákvæða uppbyggingu einstaklingsins, sjálfsmynd, samkennd og leiðtogahæfni.

Ungmennaráð Vesturlands hefur óskað eftir auknu samstarfi á milli félagsmiðstöðva á Vesturlandi og meira um sameiginleg verkefni. Starfsfólk í frístundaþjónustu á Vesturlandi tekur því fagnandi og var starfsfólkið með vinnustofu þar sem ýmsar útfærslur og möguleikar á því voru skoðaðar og lagt er upp með auknu samstarfi milli félagsmiðstöðvanna á Vesturlandi.