Vel var mætt á opinn íbúafund í Hjálmakletti í gær en þá stóðu Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) fyrir fundi um línustæði, eignarrétt og endurgjald.
Ragnar Sæmundsson, formaður SSV opnaði fundinn og bauð á svið Torfa Jóhannesson ráðgjafa hjá Nordic Insights, en Torfi kynnti skýrslu sem unnin var fyrir SSV og SSNV um áðurnefnt fundarefni.
Í skýrslu sinni beindi Torfi sjónum sínum til nágrannalanda Íslands; Svíþjóðar, Noregs og Danmörku. Torfi kynnti samráðsferli við landeigendur varðandi skipulag og uppbyggingu línustæða og hvernig verðmati og greiðslum til landeigenda fyrir notkun lands undir línustæði er háttað hjá nágrönnum okkar. Í máli Torfa kom skýrt fram að 21 öldin verður öld raforkunnar og því mikilvægt að auka samtal, efla samráð og skýra verklag um hvernig við tryggjum aukna orku til íbúa og atvinnulífs. Að sama skapi skiptir mikil máli að endurgjald fyrir land sé sanngjarnt og endurspegli virði þess.
Einar K. Guðfinsson fyrrverandi ráðherra stýrði pallborðsumræðu, en auk Torfa sátu þau Haraldur Benediktsson fyrrum bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnets og Eiríkur Blöndal formaður Hagsmunasamtaka landeigenda í pallborði og skiptust á skoðunum og svöruðu spurningum fundarmanna. Umræðan varð góð og gagnleg.
Torfi Jóhannesson mun svo í kvöld, þriðjudaginn 21.apríl kynna skýrsluna á Hótel Laugarbakka en þar stendur SSNV fyrir opnum íbúafundi og mun fundurinnhefjast klukkan 20:00.

Torfi Jóhannesson kynnti skýrslu sem unnin var fyrir SSV og SSNV

Pallborðsumræðan var góð og gagnleg

Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnet svarar spurningu fundarmanna

Einar K. Guðfinsson fyrrverandi ráðherra stýrði pallborðsumræðu