Styrkir til atvinnumála kvenna – opið fyrir umsóknir

SSVFréttir

Vinnumálastofnun/félags-og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna árið 2023 lausa til umsóknar!

Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 40.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 4.000.000

Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

  • Verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu.
  • Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.
  • Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.
  • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð.
  • Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000), ásamt styrkjum til markaðssetningar og vöruþróunar að hámarki 4.000.000.Umsóknarfrestur um lán er frá 1.febrúar til og með 28.febrúar og skal sækja um rafrænt á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is
    Á heimasíðu verkefnisins má finna nánari upplýsingar um reglur og skilyrði sem þarf að uppfylla.Hægt er að bóka viðtal á heimasíðunni hjá verkefnastjóra sem gefur nánari upplýsingar.

Nýjung!

Þær sem fá samþykktan styrk til gerðar viðskiptaáætlunar munu taka þátt í fyrirtækjasmiðju.   Keppt verður um verðlaun fyrir bestu viðskiptahugmyndina en dómnefnd mun meta kynningar þátttakenda. Nánari upplýsingar um fyrirtækjasmiðjuna munu birtast á heimasíðunni innan tíðar.

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum!

https://www.facebook.com/atvinnumalkvenna

https://www.instagram.com/atvinnumalkvenna/