Föstudaginn 20. janúar veitti Uppbyggingarsjóður Vesturlands styrki til verkefna sem efla munu atvinnuþróun og menningu í landshlutanum. Heildarupphæð styrkja nam 48.080.000 króna. Þetta er níunda árið sem sjóðurinn úthlutar styrkjum til annars vegar menningarverkefna og hins vegar atvinnu- og nýsköpunarverkefna í samræmi við Sóknaráætlun Vesturlands.
Úthlutunarhátíðin var haldin á Breið nýsköpunarsetri á Akranesi og var gríðarlega góð mæting þó svo að veður og færð hafi truflað nokkuð þar sem flestir styrkhafar frá Snæfellsnesi komust ekki vegna lokana á vegum. Undanfarin tvö ár hefur stærri úthlutun sjóðsins farið fram á netinu eingöngu vegna heimsfaraldursins og því var einstaklega ánægjulegt að koma saman og hitta alla þá frjóu og öflugu Vestlendinga sem hlutu styrki í ár. Páll S. Brynjarsson framkvæmdarstjóri SSV opnaði hátíðina og var dagskráin þéttskipuð en ásamt því að veita styrki var kynnig á verkefninu “Dalahvítlaukur”, Gísli Einarsson steig á stokk og fór með part úr sýningunni sinni “Ferðabók Gísla Einarssonar” sem er nú í sýningu í Landnámssetrinu og hlaut styrk frá sjóðnum í fyrra. Þá var tónlistaratriði frá Smiðjuloftinu og kynning á InSitu verkefninu sem er í höndum Rannsóknarseturs skapandi greina á Bifröst. Í lokin var boðið upp á léttar veitingar og hátíðargestir tóku spjallið um menningu og atvinnulíf. Kynnir á úthlutunarhátíðinni var Svala Svavarsdóttir verkefnastjóri Uppbyggingarsjóðs, Ólafur Sveinsson atvinnuráðgjafi kynnti úthlutunanir í flokki atvinnu- og nýsköpunarverkefna og Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúa kynnti úthlutunanir í flokki menningarverkefna. Þá afhenti Helena Guttormsdóttir formaður úthlutunarnefndar styrkina ásamt Ólöfu Guðmundsdóttur atvinnuráðgjafa og Guðveig Eyglóardóttir formaður SSV sleit hátíðinni.
Alls bárust 121 umsókn, veittir voru styrkir til 81 verkefnis en í heildina var sótt um samanlagt um rúmlega 172 mkr.
Þetta var fyrri úthlutun ársins en síðsumars verður aftur opnað fyrir umsóknir í flokki atvinnu- og nýsköpunarstyrkja. Að þessu sinni hlutu 57 verkefni á sviði menningar styrki sem námu 27.450.000 kr. , 19 verkefni hlutu styrki til atvinnuþróunar upp á alls 15.880.000 kr. og þá voru veittar 4.750.000 kr. til 5 stofn- og rekstrarverkefna á sviði menningar.
Mikill fjölbreytileiki er í verkefnunum og í atvinnu- og nýsköpunarumsóknum voru flestar umsóknir í flokki matvæla og ferðaþjónustu en einnig komu umsóknir í flokki líftækni, landbúnaðar ásamt verslun og þjónustu. Áfram er mikill kraftur og frjó hugsun hjá listafólki og þeim sem starfa í menningartengdum greinum sem mun efla menningu á Vesturlandi.
Hér má sjá hvaða verkefni hlutu styrk:
ATVINNU- OG NÝSKÖPUNARSTYRKIR | |||
Verkefni | Umsækjandi | Verkefnastjóri | Upphæð |
Nýting Grjótkrabba, framleiðsla á soði | Hrafnasteinar ehf. | Þröstur Ingi Auðunsson | 200.000 |
Kaffibrennslan Valeria heimsækir Kólombíu | Kanpo Ísland ehf. | Marta Magnúsdóttir | 300.000 |
Hoppað í Atlantshafið (Hoppland) | Hoppland ehf. | Konráð Gunnar Gottliebsson | 400.000 |
Climbing Iceland – markaðssetning klifurferða | Smiðjuloftið ehf. | Þórður Sævarsson | 400.000 |
Borgarfjarðarbraut | Ferðafélag Borgarfjarðarhrepps | Gísli Einarsson | 500.000 |
Urður Ullarvinnsla | Ingibjörg Þóranna Steinudóttir | Ingibjörg Þóranna Steinudóttir | 500.000 |
Töfrar Breiðafjarðar | Sjávarborg ehf. | Skarphéðinn Berg Steinarsson | 600.000 |
Metabolic Borgarnesi | Metabolic Borgarnesi ehf. | Bryndís Birgisdóttir | 600.000 |
Nord organic food fair 2022 | Kaja Organic ehf. | Karen Emilía Jónsdóttir | 630.000 |
Veislubollur – pinnamatur | Skagafiskur ehf. | Jónheiður Gunnbjörnsdóttir | 750.000 |
Growing mushrooms in greenhouses – a new crop for the future | Cristina Isabelle Cotofana | Cristina Isabelle Cotofana | 1.000.000 |
Frumathugun vegna rannsóknastöðvar um kolefnisbindingu | Transition Labs ehf. | Jóhann Þorvaldur Bergþórsson | 1.000.000 |
Breið líftæknismiðja | Breið líftæknismiðja ehf. | Þórður Bergsson | 1.000.000 |
La Brújería | Alexandra Dögg Sigurðardóttir | Alexandra Dögg Sigurðardóttir | 1.200.000 |
Umhverfisvænni og heilbrigðari landbúnaður með hjálp Bokashi | Anna Berglind Halldórsdóttir & Ólafur Bragi Halldórsson | Anna Berglind Halldórsdóttir | 1.250.000 |
uppskera á bláskel í Hvammssfirði. | Hvammsskel ehf | Baldur Þórir Gíslason | 1.250.000 |
Dalahvítlaukur | Svarthamar Vestur ehf. | Þórunn Margrét Ólafsdóttir | 1.300.000 |
Skordýr sem fóður og framtíðarfæða | Landbúnaðarháskóli Íslands | Ragnheiður I Þórarinsdóttir | 1.500.000 |
Vinnsla á grjótkrabba á Akranesi | North Marine Ingredients ehf. | Þórður Bergsson | 1.500.000 |
Samtals: | 15.880.000 | ||
MENNINGARSTYRKIR | |||
Verkefni | Umsækjandi | Verkefnastjóri | Upphæð |
Söguskilti í Ólafsvík | Skógræktarfélag Ólafsvíkur | Vagn Ingólfsson | 200.000 |
Sex viðburðir i í Gestastofu Snæfellsness | Svæðisgarður Snæfellsness ses. | Ragnhildur Sigurðardóttir | 200.000 |
Ljósmyndasafn Júlíusar Axelssonar | Borgarbyggð | Jóhanna Skúladóttir | 200.000 |
Konudagstónleikar | Katrín Valdís Hjartardóttir | Katrín Valdís Hjartardóttir | 200.000 |
Tónleikar með lögum Jónasar Árnasonar | Karlakórinn Svanir | Valgerður Jónsdóttir | 200.000 |
Heimatónleikar í Stykkishólmi 2023 | Hjördís Pálsdóttir | Hjördís Pálsdóttir | 200.000 |
Trillukallakór | Bíóbúgí ehf. | Rut Sigurðardóttir | 200.000 |
Tónlistarheimsóknir á Vesturlandi | Smiðjuloftið ehf. | Valgerður Jónsdóttir | 200.000 |
Vortónleikar 2023 | Rakel Birgisdóttir | Sylvía Rún Guðnýjardóttir | 200.000 |
„Kellingar í verslun“ | Guðbjörg Sæunn Árnadóttir | Guðbjörg Sæunn Árnadóttir | 250.000 |
Þyrlurokk 90 | Rokkland ehf. | Ólafur Páll S Gunnarsson | 250.000 |
Skotthúfan 2023 | Stykkishólmsbær | Hjördís Pálsdóttir | 250.000 |
VETRAR SÝNINGAR Í LISTHÚSINU 2022 | Michelle Lynn Bird | Michelle Lynn Bird | 250.000 |
Íslensk sönglög að vori | Kór Akraneskirkju | Rún Halldórsdóttir | 250.000 |
Menningardagskrá Safnahúss Borgarfjarðar | Borgarbyggð | Þórunn Kjartansdóttir | 300.000 |
Dietrich | Sigríður Ásta Olgeirsdóttir | Sigríður Ásta Olgeirsdóttir | 300.000 |
Menningardagskrá í Norska húsinu 2023 | Stykkishólmsbær | Hjördís Pálsdóttir | 300.000 |
Gamla Pakkhúsið í Ólafsvík | Hollvinafélag Pakkhússins Ólafsvík | Jenný Guðmundsdóttir | 300.000 |
Árstíðirnar | Lúðvík Karlsson | Lúðvík Karlsson | 300.000 |
Hljóðupptökur á tónlist karlakórsins Heiðbjartar | Karlakórinn Heiðbjört | Kristján Þórðarson | 300.000 |
Listviðburðir í Dalíu | D9 ehf. | Leifur Steinn Elísson | 300.000 |
Heima – Upptökur á sönglögum eftir íslenskar konur | Hanna Ágústa Olgeirsdóttir | Hanna Ágústa Olgeirsdóttir | 300.000 |
List og Lyst á Varmalandi | Hollvinafélag Varmalands | Vilhjálmur Hjörleifsson | 350.000 |
Sögurstaðurinn Álftártunga | Oddaholt ehf. | Svanhildur Björk Svansdóttir | 350.000 |
Er líða fer að jólum 2023 | Alexandra Rut Jónsdóttir | Alexandra Rut Jónsdóttir | 350.000 |
Sælusumrin löng | Anna Þórhildur Gunnarsdóttir | Anna Þórhildur Gunnarsdóttir | 350.000 |
uppsetning á Leikverki | Leikklúbbur Laxdæla | Þorgrímur E Guðbjartsson | 400.000 |
Uppbygging á Englandi | Ferðafélag Borgarfjarðarhrepps | Gísli Einarsson | 400.000 |
Listasafn Dalasýslu 30 ára | Byggðasafn Dalamanna | Kristján Sturluson | 400.000 |
Falið afl myndlistarsýning | Smári Hrafn Jónsson | Smári Hrafn Jónsson | 400.000 |
Sumartónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ, Hvalfjarðarströnd | Sumartónleikar Hallgrímskirkju í Saurbæ | Jósep Gíslason | 400.000 |
Jólasöngdætur Akraness | Menningarfélagið Bohéme | Hanna Þóra Guðbrandsdóttir | 400.000 |
Komum saman / Let´s Come Together | Alicja Chajewska | Alicja Chajewska | 500.000 |
Viðburðir í Landnámssetrinu | Landnámssetur Íslands ehf. | Kjartan Ragnarsson | 500.000 |
Ólafsdalshátíð 2023 | Ólafsdalsfélagið | Rögnvaldur Guðmundsson | 500.000 |
Júlíana hátíð sögu og bóka | Júlíana, félagasamtök | Gréta Sig Bjargardóttir | 500.000 |
Þjóðahátið Vesturlands / Festival of Nations | Félag nýrra Íslendinga | Malini Elavazhagan | 500.000 |
Frostbiter: Icelandic Horror Film Festival | Lovísa Lára Halldórsdóttir | Lovísa Lára Halldórsdóttir | 500.000 |
„Hér er mitt Frón“ – Heimildamynd | Arthur Björgvin Bollason | Arthur Björgvin Bollason | 500.000 |
Landbúnaður í gegnum safn og skóla | Landbúnaðarsafn Íslands ses | Anna Heiða Baldursdóttir | 500.000 |
Örnefnasjá | Hollvinafélag Varmalands | Vilhjálmur Hjörleifsson | 500.000 |
Saga Þórsnesinga, Eyrbyggja og Álftfirðinga Örnefnaskrá | Anok Margmiðlun ehf | Anna Sigríður Melsteð | 500.000 |
Jólatónleikar Hljómlistarfélags Borgarfjarðar 2023 | Hljómlistarfélag Borgarfjarðar | Þóra Sif Svansdóttir | 500.000 |
Skaginn syngur inn jólin 2023 | Eigið fé ehf. | Hlédís H. Sveinsdóttir | 500.000 |
Söfnun munnlegra heimilda – Saga laxveiði í Borgarfirði | Landbúnaðarsafn Íslands ses | Anna Heiða Baldursdóttir | 600.000 |
HEIMA-SKAGI 2023 | Rokkland ehf. | Ólafur Páll S Gunnarsson | 600.000 |
Kalman – listafélag | Kalman – listafélag | Björg Þórhallsdóttir | 600.000 |
Fyrirlestrar og viðburðir 2023 | Snorrastofa | Bergur Þorgeirsson | 700.000 |
Kona að strokka, | Rjómabúið Erpsstöðum | Þorgrímur E Guðbjartsson | 700.000 |
Anima Mea – Stuttmynd | Hanna Ágústa Olgeirsdóttir | Hanna Ágústa Olgeirsdóttir | 750.000 |
Tilraunafornleifahátíð á Eiríksstöðum | Iceland Up Close ehf. | Bjarnheiður Jóhannsdóttir | 750.000 |
Hinseginhátíð Vesturlands | Hinsegin Vesturland, félagasamtök | Bjargey Anna Guðbrandsdóttir | 800.000 |
Listin að lifa | Muninn kvikmyndagerð ehf. | Heiðar Mar Björnsson | 800.000 |
Reykholtshátíð 2023 | Sigurður Bjarki Gunnarsson & Þórunn Ósk Marínósdóttir | Sigurður Bjarki Gunnarsson | 900.000 |
Listaverk vegna 70 ára afmælis Kvenfélags Ólafsvíkur | Kvenfélag Ólafsvíkur | Steiney Kristín Ólafsdóttir | 1.000.000 |
Skrímsla safarí: Skúlptúr-, fræðslu- og skemmtigarður | The Freezer ehf. | Kári Viðarsson | 1.500.000 |
IceDocs / Iceland Documentary Film Festival | Docfest ehf. | Ingibjörg Halldórsdóttir | 2.500.000 |
Samtals: | 27.450.000 | ||
STOFN- OG REKSTRARSTYRKIR MENNINGAR | |||
Verkefni | Umsækjandi | Verkefnastjóri | Upphæð |
Vetraropnun sýninga | Landnámssetur Íslands ehf. | Helga Margrét Friðriksdóttir | 750.000 |
Sjóminjasafnið á Hellissandi | Sjóminjasafnið í Sjómannagarðinum | Þóra Olsen | 1.000.000 |
Rekstur Vínlandsseturs 2023 | Vínlandssetur ehf. | Bjarnheiður Jóhannsdóttir | 1.000.000 |
Rekstur Eiríksstaða 2023 | Iceland Up Close ehf. | Bjarnheiður Jóhannsdóttir | 1.000.000 |
Eyrbyggjasögusetur 2. áfangi – Hönnunferli | Eyrbyggjasögufélag | Anna Sigríður Melsteð | 1.000.000 |
Samtals: | 4.750.000 | ||
HEILDARÚTHLUTUN: | 48.080.000 |