Kynningarfundur Atvinnumál kvenna

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

Kynningarfundur um styrki til atvinnumála kvenna verður haldinn í Borgarnesi 23.september nk. Auk kynningar á styrkjum verða erindi frá frumkvöðlakonu, frá sérfræðingi á Byggðastofnun auk þess sem Atvinnuráðgjöf Vesturlands mun kynna þjónustu sína við frumkvöðla.

Opnuð hefur verið heimasíða þar sem nálgast má umsóknareyðublað ásamt nánari upplýsingum og er slóðin www.atvinnumalkvenna.is

Dagskrá fundarins má finna hér


Fréttatilkynning
50. milljónir til úthlutunar og aukin þjónusta

Nú hefur Vinnumálastofnun/ Félagsmálaráðuneytið auglýst styrki til Atvinnumála kvenna lausa til umsóknar og er umsóknarfrestur til 28.september næstkomandi. Til umráða nú eru 50 milljónir sem að verður úthlutað til kvenna sem hafa góðar viðskiptahugmyndir.

Að þessu sinni verður hægt að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlana, markaðs- og kynningarmála, þróunarvinnu af ýmsu tagi og hönnunar. Nýnæmi í styrkveitingum að þessu sinni er að konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun geta sótt um styrk vegna launakostnaðar í allt að 6 mánuði. Ekki eru veittir styrkir til stærri fjárfestinga í aðstöðu, tækjum og búnaði.

Forsendur þess að umsóknir séu styrkhæfar eru að verkefnið sé í eigu konu/kvenna og stjórnað af konu, að það feli í sér atvinnusköpun til frambúðar og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun og að viðskiptahugmynd sé vel útfærð.

Auk styrkja sem úthlutað verður þjónusta við konur sem hafa hug á stofnun fyrirtækja aukin til muna. Í því skyni hefur verið sett upp heimasíða þar sem að hægt verður að fá ráðgjöf og fræðslu auk þess sem sett verður upp samfélagsvefur kvenna í atvinnurekstri.
Á síðunni verður einnig hægt að nálgast margvíslegar upplýsingar um stofnun og rekstur fyrirtækja auk annara hagnýtra upplýsinga en slóðin á síðuna er www.atvinnumalkvenna.is

Styrkir til atvinnumála kvenna eiga sér sögu frá því árið 1991 en þá ákvað þáverandi og núverandi félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir að veita styrki til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir.

Síðan þá hafa styrkir verið auglýstir árlega og hafa 327 konur fengið styrki til að vinna að viðskiptahugmyndum sínum sem margar hverjar hafa orðið að fyrirtækjum í rekstri í dag. Vinnumálastofnun hefur vistað verkefnið síðastliðin 10 ár og hefur nú ráðið til starfa sérfræðing til að sinna styrkveitingum, þjónustu og ráðgjöf við konur í atvinnurekstri. Hún heitir Ásdís Guðmundsdóttir og starfar á skrifstofu Vinnumálastofnunar á Sauðárkróki en starfssvæði verkefnisins er allt landið.

Hámarksstyrkur í ár er kr. 2.000.000 en ekki eru veittir styrkir sem eru lægri en 300.000. Umsóknarfrestur er til 28.september og sækja skal rafrænt um á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is

Kynningarfundir um styrkina og þjónustu við konur sem hyggja á atvinnurekstur verða í september á eftirtöldum stöðum; á Blönduósi, Akureyri, Húsavík, Reyðarfirði, Höfn í Hornafirði, Hvolsvelli, Reykjavík, Reykjanesbæ, Borgarnesi, Patreksfirði og Ísafirði.

Fundirnir eru haldnir í samvinnu við Impru – Nýsköpunarmiðstöð og Atvinnuþróunarfélög á hverjum stað en auk kynningar á styrkjum til atvinnumála kvenna og þjónustu mun athafnakona af hverju svæði vera með innlegg, Sigríður Elín Þórðardóttir, sérfræðingur á Byggðastofnun mun fjalla um rannsóknir sínar á atvinnurekstri kvenna á Íslandi og Atvinnuþróunarfélögin og Impra munu kynna þjónustu sína.

Dagskrá verður auglýst nánar á hverjum stað og á heimasíðu verkefnisins www.atvinnumalkvenna.is