SSV býður til opins kynningarfundar um Uppbyggingarsjóð Vesturlands föstudaginn 16. október kl. 12:00–13:00. Á fundinum verður farið yfir markmið sjóðsins, styrkjaflokka og úthlutunarreglur. Einnig verður farið í gegnum umsóknarkerfið og gefin hagnýt ráð um gerð umsókna. Fundurinn fer fram á Teams og verður jafnframt í beinu streymi á Facebook, þar sem áhorfendur geta komið á framfæri spurningum sem svarað verður …
Kynningarstikla fyrir Barnó – BEST, MEST VEST!
Það ættu öll að finna eitthvað fyrir sinn smekk á BARNÓ 2026! Hér má sjá kynningarstiklu fyrir barnamenningarhátíðina í ár. Barnó – BEST, MEST VEST! er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Vesturlands og er studd af Barnamenningarsjóði Íslands. Barnó er stoltur samstarfsaðili List fyrir alla! Lifi listin og áfram barnamenning!!!! Tónlistin í myndbandinu er frá smiðju Takts og texta í Grundarfirði á Barnó …
Barnó! er hafin
Barnamenningarhátíð Vesturlands, Barnó – BEST MEST VEST!, er nú hafin en hátíðin var sett við hátíðlega athöfn í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík fimmtudaginn 1. október. Þar stigu á svið Jazzhljómsveit Tónlistarskóla Stykkishólms, Carla og Juan voru með sirkusatriði auk þess sem dagskráin var kynnt formlega. Kynnar kvöldsins voru engin önnur en leiklistargyðjan Thalía og Þorleifur, en þau skruppu alla leið …
Morgunblaðið vekur athygli á rannsókn SSV um óstaðbundin störf
Niðurstöður rannsóknar Vífils Karlssonar og Grétu Bergrúnar Jóhannesdóttur á óstaðbundnum störfum hafa vakið athygli, en Morgunblaðið fjallar um rannsóknina og möguleg áhrif aukins sveigjanleika á vinnumarkaði á búsetuval fólks. Rannsóknin var unnin fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og niðurstöður hennar voru nýverið kynntar á ráðstefnu um byggðamál í Háskólanum á Akureyri. Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur meðal annars fram að 55% …
Borgarnes með víðfeðmasta þjónustusvæðið á Vesturlandi
Út er komin ný Glefsa SSV, Þjónustu- og atvinnusókn til Vesturlands. Þar er skoðað hvaðan íbúar sækja þjónustu og atvinnu til helstu þéttbýliskjarna á Vesturlandi. Greiningin byggir á þjónustukönnun Byggðastofnunar frá árinu 2024. Niðurstöðurnar benda til þess að Borgarnes sé öflugasti þjónustukjarninn á Vesturlandi þegar horft er til landfræðilegrar útbreiðslu þjónustusóknar. Þátttakendur frá 25 stöðum sögðust sækja þjónustu þangað og …
Haustið iðar af lífi á Breið nýsköpunarsetri
Fram undan er fjölbreytt og spennandi dagskrá á Breið nýsköpunarsetri á Akranesi þar sem nýsköpun, menning, listir og samfélag mætast undir sama þaki. SSV er stoltur samstarfsaðili Breiðar ásamt fjölmörgum öðrum aðilum á Vesturlandi sem vinna að því að efla öflugt atvinnu- og menningarlíf í landshlutanum. Dagskráin í haust býður upp á fjölbreytta viðburði fyrir íbúa og gesti. Má þar …
Ungmennaþing Vesturlands 2026 haldið í Borgarnesi
Ungmennaþing Vesturlands var haldið á Hótel Borgarnesi dagana 25. til 27. september 2026. Þar komu saman 41 ungmenni víðsvegar að af Vesturlandi til að ræða málefni sem brenna á ungu fólki og móta sameiginlega sýn á framtíð svæðisins. Dagskrá þingsins einkenndist af líflegum umræðum, vinnustofum og samvinnu þátttakenda. Afrakstur þingsins var ályktun Ungmennaþings Vesturlands þar sem fram koma áherslur og …
Uppbyggingarsjóður er opinn fyrir umsóknir
Uppbyggingarsjóður Vesturlands er nú opinn fyrir umsóknir. Sjóðurinn styður fjölbreytt verkefni á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk þess að veita stofn- og rekstrarstyrki á sviði menningarmála á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands. Umsóknarfrestur er til 21. október kl. 14:00 og er sótt um í …
Ungmennaþing Vesturlands 25.-27.september 2026
Ungmennaþing Vesturlands verður haldið á Hótel Borgarnesi helgina 25.-27.september 2026. Um er að ræða samstarfsverkefni sveitarfélaga á Vesturlandi, Ungmennaráðs Vesturlands og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og er fjármagnað af Sóknaráætlun Vesturlands. Markmið með þinginu er að: – fá ungt fólk af öllu Vesturlandi saman – stuðla að uppbyggingu í þágu ungs fólks á öllu Vesturlandi – skapa vettvang fyrir …








