46 – Heilbrigðisnefnd Vesturlands

admin

46 – Heilbrigðisnefnd Vesturlands

FUNDARGERÐ
46.  FUNDUR HEILBRIGÐISNEFNDAR VESTURLANDS
Miðvikudaginn 17. mars 2004 kl. 9.30 kom heilbrigðisnefnd Vesturlands saman til símafundar.
Mættir voru:     Rúnar Gíslason
    Jón Pálmi Pálsson
    Sigrún Pálsdóttir
    Finnbogi Rögnvaldsson.
    Hallveig Skúladóttir
    Ragnhildur Sigurðardóttir
    Helgi Helgason sem ritaði fundargerð
    Laufey Sigurðardóttir
   
Björg Ágústsdóttir var í leyfi..
Dagskrá
1. Ákvörðun um fundarstað fyrir aðalfund
Samþykkt að halda aðalfundinn í Módel Venus föstudaginn 26. mars kl. 14.00. Boðað til stjórnarfundar kl. 13.00 sama dag.
2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar Heilbrigðiseftirlits Vesturlands fyrir árið 2003.
Miklar umræður urðu um reikningana og sérstaklega miklar skuldir um áramót. Jón Pálmi óskaði eftir bókun og ítrekaði fyrri samþykktir stjórnar þess efnis að ekki væri líðandi að safna saman slíkum skuldum og gæti það valdið framkv.stj. og stjórn skaða. Jafnframt lagði hann til að fullir vextir yrðu greiddir af van-greiddum launum og lífeyrisskuldbindingum starfsmanna. Sigrún tók undir þetta álit.
Reikningar samþykktir.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10.05