Veiðigjöld hækka hlutfallslega mest hjá smæstu bátunum

VífillFréttir

Þegar skoðað er hvernig hækkun veiðigjalds gæti hækkað eftir stærð fiskiskipa, í veiðimagni talið, kemur í ljós að hún er hlutfallslega mest hjá þeim smæstu. Það eru þau sem veiða á bilinu 1 til 349 tonn á ári. Þetta leiða útreikningar í ljós sem sagt er frá í nýrri Glefsu. Síðan lækkar hækkunin hlutfallslega og nær lágmarki í rúmlega 1000 tonnum og hækkar eftir það. Aldrei komast stærstu fiskiskipin samt yfir hækkunina sem minnstu skipin fá. 87% íslenskra fiskiskipa veiddu minna en 350 tonn árið 2024. Hlutur þorsks í afla fiskiskipa getur breytt miklu um hver hækkunin verður hlutfallslega. Þar sem sá hlutur er breytilegur eftir fiskislóðum getur verið munur á hækkuninni milli landshluta – einkum hjá smærri skipum. Glefsuna má finna með því að smella HÉR.