Nú stendur yfir vinna við endurnýjun Áfangastaðaáætlunnar Vesturlands og forgangsröðun verkefna í aðgerðaráætlun fyrir árin 2021 – 2023.
Í dag, fimmtudaginn 12. nóvember verður rafræn netkynning á verkefninu og Áfangastaðaáætlun Vesturlands kynnt. Einnig verður sagt frá þeim áhersluverkefnum sem unnið hefur verið að síðastliðin ár samkvæmt Áfangastaðaáætlun Vesturlands 2018 -2020.
Á meðan fundinum stendur verður hægt að senda inn spurningar í athugasemdum undir beinni útsendingu okkar á Facebook. Spurningar sem varða Áfangastaðaætlun og áhersluverkefni sem berast á meðan kynningunni stendur verður svarað munnlega í kjölfar kynningarinnar og þær sem berast eftir að kynningu er lokið verður svarað skriflega inn á spjallþræðinum á meðan tími vinnst til.
Í kjölfar fundarins verður opnað fyrir vefslóðir að rafrænni kosningu þar sem íbúar geta gefið leiðbeinandi álit á forgangsröðun verkefna varðandi uppbyggingu innviða á áningastöðum og útivistarleiðum á sínu svæði á Vesturlandi. Með þessu móti geta íbúar á Vesturlandi tekið virkan þátt í að móta áherslur í verkefnaáætlun næstu þriggja ára.
Hér má finna slóð inn á netkynninguna sem hefst kl 16.30 í dag:
Hér fyrir neðan má nálgast vefslóðir inn á leiðbeinandi kosningu fyrir hvert svæði á Vesturlandi. Við biðjum íbúa á Vesturlandi um að svara þeirri könnun sem miðuð er að þeirra heimasvæði.
Kosning – Sunnan Skarðsheiðar (Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit og Kjósahreppur)