Menningar- og velferðarsvið ferðast um Snæfellsnes

SSVFréttir

Í maímánuði 2025 fór menningar- og velferðarsviði Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi í vettvangsferð um Snæfellsnes með það að markmiði að heimsækja stofnanir sem sinna fjölbreyttum málefnum sviðsins, en með sérstakri áherslu á öldrunarþjónustu. Heimsóknirnar veittu dýrmætt tækifæri til að kynnast frekar starfseminni á svæðinu og efla tengslanetið við starfsfólk og íbúa um stöðu og framtíð þjónustunnar.

Í Stykkishólmi var dvalarheimilið Systraskjól heimsótt, þar sem tekið var á móti hópnum með hlýju og fagmennsku. Þar gafst tækifæri til að ræða við starfsfólk og íbúa um daglegt líf og þjónustu. Í Grundarfirði var næst komið við á dvalarheimilinu Fellaskjóli, þar sem á sjónarmið þeirra sem þjónustuna nýta og veita – og sérstaklega metnaðarfullar hugmyndir um uppbyggingu og bætingu aðstöðu íbúa.

Í Ólafsvík var heimsótt dvalarheimilið Jaðar, þar sem rætt var við starfsfólk um áskoranir og tækifæri í öldrunarþjónustu á svæðinu. Einnig var heimsótt Höllin, ný félagsmiðstöð eldri borgara sem opnuð var nýverið og þjónar sem samverustaður fyrir eldri íbúa Snæfellsbæjar. Þar var rætt við gesti og starfsfólk um mikilvægi félagslegrar virkni og þátttöku í samfélaginu.
Í Stykkishólmi var einnig heimsótt búsetukjarninn Höfðaborg, sem þjónar sem miðstöð öldrunarþjónustu í sveitarfélaginu. Þar er boðið upp á fjölbreytta þjónustu fyrir eldra fólk, þar á meðal verkefnið „Kíkt í tíu“, sem felur í sér heimsóknir félagsvera sem veita stuðning við daglegt líf og hvetja til sjálfsbjargar og virkni. Höfðaborg hefur verið mikilvægur þáttur í að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu í Stykkishólmi og Helgafellssveit .

Á meðan á ferðinni stóð átti hópurinn stutt spjall við Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson sveitarstjóra í Stykkishólmi og Björgu Ágústsdóttur bæjarstjóra í Grundarfirði. Í þessum samtölum var lögð áhersla á að efla samtalið og halda áfram góðu samstarfi um öldrunar- og velferðarþjónustu á svæðinu og tryggja að hún þróist í takt við breyttar þarfir samfélagsins. Að sjálfsögðu varð samtalið víðara og þróaðist útí farsæld og menningu – eins og oft vill verða yfir góðum kaffibolla.
SSV tekur þátt í landsverkefninu „Gott að eldast“, sem hefur það að markmiði að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Verkefnið byggist á aðgerðaáætlun stjórnvalda fyrir árin 2023–2027 og felur í sér þróunarverkefni þar sem leitað er lausna sem stuðla að heilbrigðri öldrun, sveigjanlegri þjónustu og bættum aðgangi að ráðgjöf og upplýsingum . Með þátttöku í verkefninu stefnir SSV að því að bæta þjónustu við eldra fólk á Vesturlandi og tryggja að hún sé í takt við þarfir og óskir íbúanna. Hluti af því verkefni er vinna sérstaks tengiráðgjafa, sem rannsakar félagslega einangrun eldra fólks og kemur með tillögur um úrbætur í þeim efnum.

Heimsóknirnar á Snæfellsnesi voru afar ánægjulegar og veittu góða innsýn í þá metnaðarfullu vinnu sem unnin er í þágu eldra fólks á svæðinu. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá þann áhuga og eldmóð sem starfsfólk og íbúar sýndu í samtölum um þjónustuna.

Menningar- og velferðarsvið SSV skipa Sigursteinn Sigurðsson fagstjóri, Bára Daðadóttir verkefnastjóri innleiðingar farsældar á Vesturlandi, Laufey Jónsdóttir tengiráðgjafi og Líf Lárusdóttir verkefnastjóri Gott að eldast á Vesturlandi.


Laufey virðir fyrir sér handverk í Höllinni í Ólafsvík


Þórný Alda Baldursdóttir, hjúkrunarforstjóri Systraskjóls, ræðir við Laufey og Líf


Hópurinn stillir sér upp með Rakel Birgisdóttur og Signýju Gunnarsdóttur í Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Fellaskjóli í Grundarfirði og velta fyrir sér framtíðarmöguleikum