Ferðaþjónusta er ein af þeim atvinnugreinum sem taldar eru til vaxtarsprota Íslands. En þrátt fyrir mikinn vöxt í greininni undanfarin áratug hefur það ekki skilað sér sem skildi í auknum hagvexti á landsbyggðinni. Ein leið til að styrkja ferðaþjónustuna og auka hagræn áhrif hennar í sveitum landsins er að efla tengsl og auka samstarf ferðaþjónustu og staðbundinnar matvælaframleiðslu.
Markmið málþingsins er að:
- Vekja athygli á möguleikum sem felast í heimavinnslu matvæla og sölu beint frá býli
- Varpa ljósi á þróunarferlið – frá hugmynd til heimavinnslu
- Hvetja til samtals og samstarfs milli matvælaframleiðenda í héraði og ferðaþjónustuaðila
Dagskrá:
Fundarstjóri: Halla Steinólfsdóttir, Ytri-Fagradal
14:30 Málþing sett. Margrét Björk Björnsdóttir, SSV.
14:40 Uppbygging á matartengdri ferðaþjónustu – reynslusögur frumkvöðla.
Arnheiður Hjörleifsdóttir, Bjarteyjarsandi.
Þorgrímur E. Guðbjartsson, Erpsstöðum.
15:30 Kaffihlé
15:45 Uppbygging sveitamarkaðsverslunar & matarklasa í Ríki Vatnajökuls. Rósa Björk Halldórsdóttir, Markaðsstofa Vesturlands.
16:00 Samstarf matvælaframleiðanda, ferðaþjónustu og stoðkerfis í héraði. Þóra Valsdóttir, Matís.
16:15 Matarmerki og svæðisbundin matvæli. Margrét Björk Björnsdóttir, SSV.
16:25 Sýn söluaðila á handgerðar og heimaunnar vörur. Eirný Sigurðardóttir, Búrið.
16:45 Hvað er beint frá býli? Hlédís Sveinsdóttir, Beint frá býli .
16:55 Heimilisiðnaðareldhús – hugmyndafræði, framkvæmd og nýting. Margrét Björk Björnsdóttir, SSV.
17:10 Samantekt og umræður. Halla Steinólfsdóttir, Ytri-Fagradal.
Allir áhugasamir velkomnir – Aðgangur ókeypis