Fundur: Staða og framtíð fjarskiptamála á Vesturlandi

SSVFréttir

SSV stendur fyrir fundi um fjarskiptamál á Vesturlandi mánudaginn 22 janúar.  Fundurinn hefst kl. 09:00.  Á fundinum mun Þorsteinn Gunnlaugsson ráðgjafi hjá Gagna kynna nýja skýrslu um stöðu fjarskiptamála á Vesturlandi sem hann vann á s.l. ári.  Allir velkomnir. Skýrsla: Staða á fjarskiptamálum á Vesturlandi 2023 Til að fá fundarboð á Teams þarf að skrá sig á fundinn hér að …

Heimsókn til Brunavarna Árnessýslu

SSVFréttir

Undanfarið hefur verið starfandi vinnuhópur á vegum SSV um aukið samstarf slökkviliða á Vesturlandi.  Hópurinn er skipaður fulltrúum frá sveitarfélögunum á Vesturlandi en Ragnar Sæmundsson bæjarfulltrúi á Akranesi er formaður hópsins.  Í síðustu viku heimsótti hópurinn, ásamt slökkviliðsstjórum á Vesturlandi,  Brunavarnir Árnessýslu til að fræðast um starfsemi þeirra og skipulag en Brunavarnir Ársnessýslu er sameiginlegt verkefni allra átta sveitarfélaganna í …

Uppbyggingarsjóður Vesturlands úthlutar rúmlega 46 milljónum

SSVFréttir

Föstudaginn 12. janúar veitti Uppbyggingarsjóður Vesturlands styrki til 75 verkefna . Heildarupphæð styrkja nam 46.400.000 króna. Þetta er tíunda árið sem sjóðurinn úthlutar styrkjum til annars vegar menningarverkefna og hins vegar atvinnu- og nýsköpunarverkefna en sjóðurinn er hluti af Sóknaráætlun Vesturlands. Að þessu sinni var úthlutunarhátíðin haldin í Hjálmakletti Borgarnesi og mættu rúmlega 120 manns. Páll S. Brynjarsson framkvæmdarstjóri SSV …

Staða innflytjenda á vinnumarkaði á krepputímum eftir byggðamynstri og atvinnugreinum

VífillFréttir

Rétt fyrir jól kom út greinin „Staða innflytjenda á vinnumarkaði á krepputímum eftir byggðamynstri og atvinnugreinum“ í sérhefti tímaritsins Íslenska þjóðfélagið. Í henni er fyrri greining á stöðu innflytjenda tekin lengra og bætt og þó sérstaklega m.t.t. byggðavinkilsins. Margt kemur þarna fram en hið áhugaverðasta er að innflytjendur njóta ekki svokallaðs borgarhagræðis á vinnumarkaði líkt og  Íslendingar njóta, t.d. í …

Fjárfestahátíð Norðanáttar 2024 – Opið fyrir umsóknir

SSVFréttir

Í þriðja sinn stendur Norðanátt, með stuðningi frá Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu, fyrir Fjárfestahátíð á Siglufirði. Hátíðin fer fram þann 20. mars 2024 og auglýsir Norðanátt nú eftir nýsköpunarverkefnum í leit að fjármögnun úr öllum landshlutum.  

Kjörstærð sveitarfélags gæti verið um tuttugu þúsund íbúar

SSVFréttir

Viðamikil könnun meðal íbúa íslenskra sveitarfélaga sýnir að þjónustan er almennt betri í fjölmennari sveitarfélögum en fámennari. Vífill Karlsson sérfræðingur í byggðarannsóknum segir margt erfiðara í fámennum samfélögum og að hröð þróun og auknar kröfur um þjónustu krefjist sérfræðiþekkingar sem fámenn dreifbýlissveitarfélög ráði illa við. Kjörstærð sveitarfélags gæti verið um tuttugu þúsund íbúar. Hægt er að hlusta á viðtalið við …

Sameiningar hreinna dreifbýlissveitarfélaga og þjónusta

VífillFréttir

Í gær kom út greinin „Sameiningar hreinna dreifbýlissveitarfélaga og þjónusta“ í sérhefti tímaritsins Íslenska þjóðfélagið. Í henni er gerð tilraun til að meta hvort fólk í dreifbýli sé ánægðara með þjónustu síns sveitarfélags í  fámennu hreinu dreifbýlissveitarfélagi eða sem hluti af stóru sveitarfélagi þar sem stærri þjónustukjarna er að finna. Tilefni rannsóknarinnar var m.a. að oft falla sameiningartillögur á andstöðu …

Íslensku jólasveinarnir eru úr Dölunum

SSVFréttir

Í morgun kom óvænt heimsókn á skrifstofu SSV,  en þá birtust jólasveinar úr Dölunum með glaðning úr þeirra heimahéraði. En íslensku jólasveinarnir er verkefni sem að Kruss ehf. er að fara með af stað Þar ætla þeir að nýta sögu jólasveinanna Dölunum til framdráttar fyrir innlenda og erlenda ferðamenn  allt árið. Þetta verður samfélagslegt verkefni og er hugsað sem leið …