Öndvegisverkefni á Vesturlandi

SSVFréttir

  Uppbyggingarsjóður Vesturlands auglýsir eftir góðum viðskiptahugmyndum   Stjórn Uppbyggingarsjóðs Vesturlands hefur ákveðið að veita afar áhugaverðu verkefni/verkefnum allt að 14 m.kr. styrk. Verkefnið þarf að grundvallast á vel unninni viðskiptaáætlun, sem hefur skírskotun til svæðisins og nýsköpunar í atvinnulífi eða menningu þess, ásamt því að skapa störf og verðmæti. Ferli umsóknar verður með þeim hætti að skila þarf inn …

Vinna SSV fær athygli meðal fjölmiðla.

SSVFréttir

Rabbað um nýja skýrslu SSV í Samfélaginu. Leifur Hauksson spurði Vífil Karlsson út úr efni skýrslunnar. Ágætur úrdráttur og eða annað sjónarhorn á skýrsluna á 15 mínútum. Á mínútu 02.42 hefst viðtal við Vífil Karlsson. http://www.ruv.is/sarpurinn/ras-1/samfelagid/20170901

Útlönd standa með Vesturlandi

VífillFréttir

Í síðusutu viku var sagt frá því hér að 39 fleiri hafi flutt frá Vesturlandi til höfuðborgarsvæðisins en frá höfuðborgarsvæðinu til Vesturlands árið 2016, kallað flutningsjöfnuður. Ef dregin er upp sambærileg mynd fyrir Vesturland gagnvart öðrum landsvæðum ásamt útlöndum kemur í ljós að 152 fleiri flytja frá útlöndum til Vesturlands en frá Vesturlandi til útlanda árið 2016 (rauður ferill/lína). Þessi …

Starf er laust við urðunarstaðinn í Fíflholtum

SSVFréttir

Starf er laust við urðunarstaðinn í Fíflholtum   Sorpurðun Vesturlands hf. auglýsir eftir starfsmanni í Fíflholt. Starfið felst í almennri vinnu, ásamt vélavinnu á urðunarstaðnum sem er staðsettur í Fíflholtum á Mýrum. Vinnutími frá kl. 8 – 17 Óskað er eftir liprum og duglegum einstaklingi sem þarf að geta unnið sjálfstætt. Starfsmaðurinn þarf að hafa vinnuvélaréttindi. Hvenær viðkomandi hefur störf …

Fjarbúar og fasteignamarkaður á landsbyggðunum

VífillFréttir

Í dag kom út skýrslan: Fjarbúar og fasteignamarkaður á landsbyggðunum. Fjarbúaspenna var í brennidepli þessarar skýrslu, fjöldi annarra heimila deilt með heildarfjölda íbúða. Önnur heimili eru íbúðir í tilteknu sveitarfélagi sem eru í eigu fjarbúa og bjóðast ekki á almennum markaði til leigu eða sölu. Í þessari skýrslu kallast fólk fjarbúar sveitarfélags A ef þeir eiga íbúð í sveitarfélagi A …

Vesturland tapaði fólki til höfuðborgarsvæðisins 2016

VífillFréttir

39 fleiri fluttu frá Vesturlandi til höfuðborgarsvæðisins en frá höfuðborgarsvæðinu til Vesturlands árið 2016. Á Suðurlandi og Suðurnesjum var þessu öfugt farið þar sem fleiri fluttu til þeirra landshluta frá höfuðborgarsvæðinu en frá þeim til höfuðborgarsvæðisins. Þetta gerist reyndar svo hratt á Suðurnesjum að aldrei fyrr hefur þessi jöfnuður verið þeim hagstæðari en árið 2007 þegar skoðuð er þróunin frá …

Dregur úr fjárfestingarvilja fyrirtækja á Vesturlandi

VífillFréttir

Eitthvað hefur dregið úr vilja fyrirtækja á Vesturlandi til fjárfestinga. Þetta kom fram í skoðanakönnun sem gerð var meðal þeirra haustið 2016. Samskonar könnun var gerð bæði haustið 2014 og 2015. Samanburður á milli ára gefur til kynna að dregið hafi úr fjárfestingaviljanum. Þetta og margt fleira má sjá betur á heimasíðu okkar hjá SSV undir liðnum skemmtileg tölfræði eða …

Stiklur um menningarstarf á Vesturlandi í sumar

SSVFréttir

Elísabet Haraldsdóttir menningarfulltrúi SSV setur fram það helsta sem er að gerast í menningarmálum á Vesturlandi þessa dagana í grein sem að birtist i Skessuhorni 12.júli 2017. sjá grein hérna : Stiklur um menningarstarf á Vesturlandi í sumar

Fyrirtæki á Vesturlandi, fjárfestar og fjárfestingartækifæri

VífillFréttir

Í dag komu Kristinn Hafliðason og Arnar Guðmundsson frá Íslandsstofu. Þetta er liður í verkefni hjá þeim sem miðar að því að fá betri yfirsýn um fjárfestingar tækifæri vítt og breitt um landið. Til Íslandsstofu leitar fjöldi fjárfesta erlendra sem hérlendra og hefur aukist á undanförnum misserum. Í rauninni er allt undir en sérstakur áhugi hefur ferðaþjónustu á Íslandi verið …