Í haust flutti Vífill Karlsson, hagfræðingur hjá SSV, erindi sem hann kallaði „Sældarhagkerfið og byggðamál: Að hvað miklu leyti hafa umhverfisþættir áhrif á ákvörðun um búsetuval einstaklinga?“. Erindið var flutt á Byggðaráðstefnu Byggðastofnunar sem var í Stykkishólmi. Þar sagði hann frá frumniðurstöðum rannsóknar sinnar sem fjallar um það að hve miklu leyti umhverfisþættir eins og náttúrugæði, friðsæld og fleira hefðu …
Snæfellsbær hlýtur Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu 2018
Snæfellsbær hlaut á dögunum Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu fyrir verkefnið „Bjarnarfoss í Staðarsveit – aðgengi fyrir alla allt árið“. Bjarnarfoss er tignarlegur foss sem fellur fram af hamrabrúninni upp af Búðum á Snæfellsnesi. Verkið var unnið á árunum 2015 – 2016 og er gott dæmi um hvernig heimafólk og sveitarfélag, með liðsinni Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða, hafa unnið faglega að uppbyggingu áningarstaðar þar sem …
Áætlun Strætó á landsbyggðinni um jól og áramót 2018
Í viðhengi má finna áætlun Strætó á landsbyggðinni um jól og áramót 2018 á íslensku og ensku. Jól og áramót landsbyggð 2018 Jól og áramót landsbyggð enska 2018
Niðurstöður íbúakönnunar nú á pólsku og ensku
Samtök sveitarfélaga í flestum landshlutum stóðu fyrir gerð íbúakönnunar árin 2016 og 2017. Hún var að þessu sinni þýdd á pólsku og ensku til að ná til útlendinga búsetta hérlendis. Í dag voru settar meginniðurstöður hennar fram á pólsku (slóð inn hér) og ensku (slóð inn hér) þar sem afstaða útlendinga sem búa á Íslandi er tekin sérstaklega út og borin …
Veiðigjöld í Norðvestur kjördæmi
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi ásamt Fjórðungssambandi Vestfirðinga og Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra óskuðu eftir því við Deloitte, að skoða afkomu sjávarútvegsfyrirtækja árin 2016 og 2017 og horfa þá einkum til veiðigjalda þau árin. Úttekt Deloitte má finna hér (Hlekkur hér, smellið). Í kjölfarið var samin sameiginleg ályktun. Í framhaldi var hópurinn boðaður á fund atvinnumálanefndar Alþingis og voru megindrættir niðurstöðu …
Vilt þú taka næsta skref inn í framtíð ferðaþjónustunnar?
Opið er fyrir umsóknir í viðskiptahraðalinn Startup Tourism til 3. desember á startuptourism.is. Leitað er eftir ferðaþjónustufyrirtækjum og lausnum sem auka verðmætasköpun innan greinarinnar. Sjá kynningarmyndband: smellið hér
G.RUN hlýtur Nýsköpunarverðlaun SSV
Í gær voru Nýsköpunarverðlaun SSV veitt á Nýsköpunardegi SSV. Það var fyrirtækið G.Run sem fékk verðlaunin þetta árið og er það vel að því komið. G.Run á rætur að rekja til ársins 1947, en hefur starfað í núverandi mynd frá því árið 1974. Þetta er miðlungsstórt sjávarútvegsfyrirtæki á landsvísu sem rekur útgerð og bolfiskvinnslu. Hjá fyrirtækinu starfa 85 manns. Í …
Styrkir til nýsköpunar og atvinnuþróunar veittir á Nýsköpunardegi SSV
Í gær var haldin hátíðlegur Nýsköpunardagur SSV í Tónbergi, húsnæði Tónlistarskólans á Akranesi þar sem Nýsköpunarverðlaun Vesturlands voru afhent ásamt 18 styrkjum úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Páll S. Brynjarsson, framkvæmdastjóri SSV setti athöfnina en byrjað var á því að veita styrki til þeirra 18 verkefna sem hlutu styrk að þessu sinni úr Uppbyggingarsjóðnum til nýsköpunar og atvinnuþróunar. Alls voru veittir styrkir …