Áfangastaðaáætlun Vesturlands var birt í gær og af því tilefni afhenti Margrét Björk Björnsdóttir verkefnisstjóri ÁSÁ ferðamálastjóra eintak af áætluninni. Sjá nánar frétt á vef Ferðamálastofu Skýrsluna má finna hér
Tvöföldun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi þolir enga bið
Á fundi stjórnar SSV í gær var rætt um fyrirhugaðar framkvæmdir við Vesturlandsveg á Kjalarnesi. Stjórn SSV bókaði eftirfarandi vegna þessa: Í samgönguáætlun Vesturlands sem samþykkt var af sveitarfélögunum árið 2017 kom fram að þung áhersla var lögð á tvöföldun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi. Sveitarfélögin á Vesturlandi hafa fylgt þessu eftir með íbúafundum, ályktunum, samtölum við forsvarsmenn samgöngumála og gerð sjónvarpsefnis. …
Bættur rekstur – Betri afkoma
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi mun halda fundi til að kynna verkefnið „Bættur rekstur – Betri afkoma til að örva nýsköpun í starfandi fyrirtækjum á Vesturlandi 2019“. Verkefnið er áhersluverkefni í Sóknaráætlun Vesturlands og verður unnið í samvinnu við ráðgjafafyrirtækið Áttir ehf.
Styrkir til atvinnumála kvenna
Vinnumálastofnun/velferðarráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna árið 2019 lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur um styrki til atvinnumála kvenna
Uppbyggingarsjóður – Umsóknarfrestur lengdur um sólarhring
Frestur til að skila inn umsóknum í Uppbyggingarsjóð Vesturlands er hér með lengdur um sólarhring og er því hægt að skila inn umsóknum til kl. 23:59 mánudagskvöldið 21. janúar nk.
Akranesviti talin ein besta ferðauppgötvun ársins
Ferðablaðamenn breska tímaritsins Guardian fara fögrum orðum um Akranesvita í nýrri grein, „The best travel discoveries of 2018: chosen by Guardian writers“. Þar telja þeir Akranesvita meðal tólf bestu uppgötvana í ferðamennsku árið 2018. Blaðamaðurinn Robert Hull segir frá heimsókn sinni á Akranes. Á meðan félagi hans einbeitti sér að myndatökum með Akrafjall og Esjuna í baksýn, þá gekk hann …
Vesturland valið vetraráfangastaður Evrópu
Annað árið í röð hefur Vesturland hlotið viðurkenningu hjá tímaritinu Luxury Travel Guide. Árið 2017 var það valið sem myndrænasti áfangastaður Evrópu en árið 2018 sem vetraráfangastaður Evrópu, eða; ,,Winter Destination of Europe 2018“. Tímaritið sérhæfir sig í skrifum um áfangastaði, hótel, heilsulindir, tækni og fleira en blaðið leggur áherslu á betur borgandi ferðamenn. „Vesturland var valið vegna mikillar náttúrufegurðar …
Stjórn SSV ályktar um veggjöld
Á fundi sínum 12. desember s.l. samþykkti stjórn SSV samhljóða svohljóðandi ályktun um veggjöld. „Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fagnar áformum um að notuð verði veggjöld til að fjármagna stórfelldar og nauðsynlegar samgöngubætur sem fyrirhugaðar eru á næstu árum. Með innheimtu veggjalda er einnig hægt að fjármagna átak til uppbyggingar á leiðum á Vesturlandi eins og Uxahryggjum, Skógarströnd og fjölmörgum …