Fyrir rúmri viku fjallaði Gísli Einarsson um búferlaflutninga úr borginni eða stóru þéttbýli í þau minni eða í dreifbýlið (SMELLIÐ HÉR). Vífill Karlsson hjá SSV var einn viðmælenda og studdist hann í umsögn sinni m.a. við rannsókn sem birt var á þessu ári í erlendu tímariti (SMELLIÐ HÉR) og sýnir að fasteignaverð er einn af þeim þáttum sem leika þarna …
Nýju íbúakannanagögnin komin á vef Byggðastofnunar
Nýjustu gögn íbúakönnunar landshlutanna eru komin á mælaborð Byggðastofnunar. Nú er hægt að bera saman þróun þeirra á milli kannana. Þá eru líka komin inn eldri gögn frá árunum 2016 og 2017. Enn fremur er að finna gögn yfir enn fleiri spurningar úr könnuninni en áður var. Þetta er því orðið verulega spennandi tæki til að vinna með. Minnt er …
Íbúakönnun landshlutanna 2023 – afstaða innflytjenda
Í dag kom út Íbúakönnun landshlutanna 2023 – afstaða innflytjenda. Í þeirri skýrslu er dregin fram afstaða innflytjenda í nýlokinni íbúakönnun og hún borin saman við afstöðu Íslendinga. Einnig var hún borin saman við afstöðu innflytjenda árið 2020 þegar síðasta könnun var framkvæmd. Að mati innflytjenda jókst atvinnuöryggi á milli kannanna en samt versnuðu fleiri þættir er tengjast búsetuskilyrðum þeirra …
Ný íbúakönnun landshlutanna gefin út í dag
Hamingja íbúa mest í Skagafirði, Snæfellsnesi og á Héraði Hamingja íbúa í Skagafirði, á Snæfellsnesi og á Héraði mælist mest á landinu í nýrri íbúakönnun landshlutanna. Íbúar Stranda og Reykhóla ásamt Vestur-Húnavatnssýslu voru óhamingjusamastir í könnuninni. Í könnuninni er afstaða þátttakenda til eigin hamingju og almennrar ánægju með þjónustu sveitarfélagsins þar sem þeir búa dregin saman. Þá mælir könnunin alls …
Íbúalýðræði á Vesturlandi
Í nýjustu íbúakönnuninni voru þátttakendur spurðir út í íbúalýðræði. Í þeim tilgangi var spurt: Hversu vel finnst þér sveitarfélagið leita eftir sjónarmiðum eða skoðunum íbúanna? Á Vesturlandi var þó nokkur breidd í niðurstöðum þessarar spurningar. Í Dölunum töldu hlutfallslega fæstir þátttakenda sveitarfélagið standa sig illa í að leita eftir sjónarmiðum íbúanna eða um 17% (sjá mynd). Dalirnir voru líka lægstir …
Fjármál sveitarfélaga: Íbúaþróun og veltufé frá rekstri
Í dag kom út nýr Hagvísir sem fjallar um fjármál sveitarfélaga þar sem einblínt var á samhengi íbúaþróunar, fjárfestinga og veltufjár frá rekstri í sveitarfélögum á Vesturlandi. Veltufé frá rekstri er framlag rekstrar upp í afborganir af lánum og fjárfestingar. Tilefni viðfangsefnisins voru fréttir snemma á árinu 2023 af óvenjulegri stöðu í Sveitarfélaginu Árborg þar sem fjárhagsstaðan var slæm þrátt …
Staða innflytjenda á vinnumarkaði á krepputímum eftir byggðamynstri og atvinnugreinum
Rétt fyrir jól kom út greinin „Staða innflytjenda á vinnumarkaði á krepputímum eftir byggðamynstri og atvinnugreinum“ í sérhefti tímaritsins Íslenska þjóðfélagið. Í henni er fyrri greining á stöðu innflytjenda tekin lengra og bætt og þó sérstaklega m.t.t. byggðavinkilsins. Margt kemur þarna fram en hið áhugaverðasta er að innflytjendur njóta ekki svokallaðs borgarhagræðis á vinnumarkaði líkt og Íslendingar njóta, t.d. í …
Sameiningar hreinna dreifbýlissveitarfélaga og þjónusta
Í gær kom út greinin „Sameiningar hreinna dreifbýlissveitarfélaga og þjónusta“ í sérhefti tímaritsins Íslenska þjóðfélagið. Í henni er gerð tilraun til að meta hvort fólk í dreifbýli sé ánægðara með þjónustu síns sveitarfélags í fámennu hreinu dreifbýlissveitarfélagi eða sem hluti af stóru sveitarfélagi þar sem stærri þjónustukjarna er að finna. Tilefni rannsóknarinnar var m.a. að oft falla sameiningartillögur á andstöðu …
Nýr Hagvísir um búferlaflutninga á Vesturlandi
Í dag fór Hagvísirinn „Búferlaflutningar á Vesturlandi“ eftir Vífil Karlsson á heimasíðu SSV. Þar kemur fram að í lang flestum sveitarfélögum á Vesturlandi hefur orðið breyting á búferlaflutningum. Íbúar af Vesturlandi fluttu s.l. 5 í minna mæli til sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu en áður var. Algengara er að þeir flytji til sveitarfélaga á Reykjanesi eða á vesturhluta Suðurlands. Einnig kemur fram …
Ný Glefsa um Vesturland í fyrirtækjakönnun landshlutanna
Í dag fór smáritið Glefsa á heimasíðu SSV. Þar er í stuttu málið dregin út meginatriði Vesturlands í Fyrirtækjakönnun landshlutanna 2022. Hún var framkvæmd á fyrri hluta ársins eða í janúar til mars 2022 en síðast framkvæmd haustið 2019. Rúmlega 1600 fyrirtæki tóku þátt, þar af tæplega 200 af Vesturlandi. Þar kom m.a. fram að á Vesturlandi höfðu hlutfallslega fleiri …