Bjarki Þór Grönfeldt, doktor í stjórnmálasálfræði ásamt Vífli Karlssyni, hagfræðingi og dósent við Háskólann á Bifröst hafa gefið út skýrslu sem ber heitið Byggðabragur: Félagssálfræðileg rannsókn á þremur íslenskum sveitarfélögum. Aðdragandi rannsóknarinnar var sá að íbúakannanir hafa bent til þess að svokallaður byggðabragur geti verið gjörólíkur milli áþekkra sveitarfélaga. Með byggðabrag er átt við upp að hvaða marki íbúar eru …
Byggðaþróun – styrkir til meistaranema
Byggðastofnun auglýsir styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Kostur er ef verkefnin hafa skírskotun til byggðaáætlunar. Til úthlutunar er allt að 1.400.000 kr. og stefnt er að því að veita allt að fjóra styrki. Í umsókn skal koma fram greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og hvernig það styður við byggðaþróun. Umsækjendur þurfa að stunda meistaranám …
Opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands Úthlutun september 2024 Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands. Í ÞESSARI ÚTHLUTUN ERU: -Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar Allar upplýsingar …
Skýrsla um framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar
Nýverið skiluðu SSV og Fjórðungssambandi Vestfirðinga af sér viðmikilli skýrslu til umhverfis, orku og loftlagsráðherra með tillögum um framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar. Í skýrslunni er farið yfir verndargildi verndarsvæðisins og áhrif þess, tækifæri og áskoranir á samfélag, byggð og atvinnulíf. Yfirstjórn verkefnisins var í höndum stýrihóps skipuðum af ráðherra undir formennsku Sigríðar Finsen. Auk SSV og FV komu ýmsir aðilar …
Beint frá býli dagurinn um allt land
Beint frá býli dagurinn verður haldinn um allt land þann 18. ágúst kl. 13-16 og verður viðburður haldinn í hverjum landshluta fyrir sig í tilefni dagsins. á Vesturlandi mun Grímsstaðaket á Grímsstöðum í Reykholtsdal opna býli sitt fyrir gestum með fjölbreyttri dagskrá í samvinnu við heimavinnsluaðila og smáframleiðendur í landshlutanum. Þann 18. ágúst opna Grímsstaðir í Reykholtsdal sem rekur Grímsstaðakjöt …
Verkefnastjóri innleiðingar farsældar á Vesturlandi
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi auglýsa eftir verkefnastjóra farsældar í landshlutanum. Verkefnið er samstarf SSV og mennta- og barnamálaráðuneytisins en samstarfssamningur þess efnis var undirritaður á Farsældardegi Vesturlands 16. maí síðastliðinn. SSV er með starfstöðvar á Akranesi, Borgarnesi og Hellissandi. Markmið verkefnisins eru að samhæfa farsældarþjónustu í sveitarfélögunum á Vesturlandi og koma á fót svæðisbundnu farsældarráði í landshlutanum og ráðið er …
Sumarlokun skrifstofu SSV
Skrifstofa Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi verður lokuð frá og með miðvikudeginum 17 júlí til miðvikudagsins 7 ágúst n.k. vegna sumarleyfa starfsfólks. Bendum á heimasíðu okkar ssv.is Starfsfólk SSV
Unnið að nýrri Sóknaráætlun 2025-2029
Nú stendur yfir vinna við nýja Sóknaráætlun Vesturlands sem mun gilda frá 2025-2029. Nýverið undirrituðu Páll S. Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV og Hrafnkell Proppé eigandi Úrbana undir samning þess efnis að ráðgjafateymi Úrbana ynnu með SSV að nýrri sóknaráætlun. Sóknaráætlanir landshluta eru stefnumótandi áætlanir sem fela í sér stöðumat, framtíðarsýn, markmið og aðgerðir og eru þær unnar í víðtæku samráði …
SSV þáttakandi í átakinu „Hér er töluð allskonar íslenska“
Í maí fór fram vitundarvakningin „Hér er töluð alls konar íslenska“ er verkefni á vegum Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands og fjármagnað að hluta úr Sóknaráætlun Vesturlands. Verkefnið gengur útá að gefa innlendum og erlendum færi á að tala íslensku eftir sinni færni og getu. Með því eru brotnir múrar með því að segja að það sé í lagi að tala allskonar íslensku …
Barnamenningarhátíð hefst í dag
Akraneskaupstaður setti Barnamenningarhátíð formlega í dag. Að því tilefni var öllum mennta- og menningarstofnunum í bænum afhent nýútkomna bók á vegum Listasafns Íslands Sjónarafl: Þjálfun í myndlæsi. Bókin er einstaklega gagnleg í að kenna börnum (og fullorðnum) á öllum aldri hvernig á að lesa listaverk. Dagskrá Barnamenningarhátíðar Akraneskaupstaðar er fjölbreytt í ár og stefndur hún dagana 23.31. maí. Þema hátíðarinnar …