Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, opnaði í dag formlega fyrir umsóknir í nýjan Matvælasjóð. Frumvarp ráðherra um stofnun sjóðsins var samþykkt á Alþingi í apríl sl. og var alls 500 milljónum króna varið til stofnunar sjóðsins og verður þeim úthlutað á þessu ári. Umsóknarfrestur er 21. september. Nánar á vef stjórnarráðsins
Ný stjórn SSV tekur til starfa
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar SSV þann 26. ágúst sl. var Eyjólfur Ingvi Bjarnason oddviti Dalabyggðar kosinn varaformaður SSV og Jósef Kjartansson forseti bæjarstjórnar í Grundarfirði kosinn ritari. Lilja Björg Ágústsdóttir er formaður SSV en hún var kjörin á aðalfundi SSV sem haldin var þann 15. júní sl.
Stjórn SSV ályktar um fyrirkomulag hrognkelsaveiða
Stjórn SSV ályktaði um fyrirkomulag hrognkelsaveiða á stjórnarfundi 26. ágúst sl. en undanfarið hafa sveitarfélög á Vesturlandi hvatt stjórnvöld til þess að endurskoða fyrirkomulag veiðanna. Ályktun Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi um fyrirkomulag hrognkelsaveiða er svo hljóðandi: „Stjórn samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi hvetur Alþingi til þess að taka til umfjöllunar breytingar á fyrirkomulagi hrognkelsaveiða. Nauðsynlegt er að nýtt fyrirkomulag taki gildi …
Sævar verður fulltrúi í stafrænu ráði Sambands íslenskra sveitarfélaga
Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi verður fulltrúi Vesturlands í nýju stafrænu ráði sveitarfélaga. Verkefni ráðsins er að koma á miðlægu samstarfi sveitarfélaga til að auðvelda þeim að verða virkir þátttakendur í stafrænni þjónustu og nýta nútímatækni til að bæta þjónustu og samskipti við íbúana. Stjórn SSV skipaði Sævar í ráðið á stjórnarfundi þann 26. ágúst sl.
Persónuverndarstefna SSV
Á fundi stjórnar SSV þann 26. ágúst sl. samþykkti stjórn SSV persónuverndarstefnu samtakana. Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir á veg og vanda að vinnunni og þakkar stjórn og starfsfólk SSV Sonju fyrir vel unnin störf í persónuverndarmálum fyrir samtökin. Persónuverndarstefna SSV
Uppbyggingarsjóður auglýsir eftir umsóknum – umsóknarfrestur er 24. ágúst
Auglýsing á pdf formi RAFRÆN UMSÓKNARGÁTT AÐSTOÐ VIÐ UMSÓKNIR VERKLAGS- OG ÚTHLUTUNARREGLUR
Blað brotið í upplýsingagjöf til ferðalanga um Ísland
Markaðsstofur landshlutanna ýta úr vör langstærsta samstarfsverkefni sem samtökin hafa ráðist í. Verkefnið er mikilvægur hlekkur í enduruppbyggingu ferðaþjónustunnar í kjölfar heimsfaraldurs. Markaðsstofur landshlutanna, MAS, ýta á fimmtudaginn úr vör samstarfsverkefni sem miðar að því að auðvelda og hvetja enn frekar til ferðalaga innanlands. Verkefnið er liður í að auka á dreifingu ferðamanna um landið sem og styðja við uppbyggingu …
Sumarlokun SSV
Skrifstofa SSV verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með miðvikudeginum 15. júlí, opnum aftur þriðjudaginn 4. ágúst.