Á fundi stjórnar SSV þann 26. ágúst sl. samþykkti stjórn SSV persónuverndarstefnu samtakana. Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir á veg og vanda að vinnunni og þakkar stjórn og starfsfólk SSV Sonju fyrir vel unnin störf í persónuverndarmálum fyrir samtökin. Persónuverndarstefna SSV
Uppbyggingarsjóður auglýsir eftir umsóknum – umsóknarfrestur er 24. ágúst
Auglýsing á pdf formi RAFRÆN UMSÓKNARGÁTT AÐSTOÐ VIÐ UMSÓKNIR VERKLAGS- OG ÚTHLUTUNARREGLUR
Blað brotið í upplýsingagjöf til ferðalanga um Ísland
Markaðsstofur landshlutanna ýta úr vör langstærsta samstarfsverkefni sem samtökin hafa ráðist í. Verkefnið er mikilvægur hlekkur í enduruppbyggingu ferðaþjónustunnar í kjölfar heimsfaraldurs. Markaðsstofur landshlutanna, MAS, ýta á fimmtudaginn úr vör samstarfsverkefni sem miðar að því að auðvelda og hvetja enn frekar til ferðalaga innanlands. Verkefnið er liður í að auka á dreifingu ferðamanna um landið sem og styðja við uppbyggingu …
Sumarlokun SSV
Skrifstofa SSV verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með miðvikudeginum 15. júlí, opnum aftur þriðjudaginn 4. ágúst.
Akraneskaupstaður og Brim stofna þróunarfélag
Akraneskaupstaður og Brim hafa tekið höndum saman og stofnað sameiginlegt þróunarfélag. Undirbúningur hefur staðið frá síðastliðnu hausti, þar sem KPMG ráðgjöf hefur leitt vinnuna með þátttöku íbúa og ýmissa hagaðila. Niðurstaðan er stofnun þróunarfélags um atvinnuuppbyggingu og nýsköpun á Breið á Akranesi. SSV er í hópi aðila sem hafa lýst yfir vilja til að eiga samstarf um að á Akranesi …
Uppbyggingarsjóður Vesturlands: Öndvegisstyrkir
Sóknaráætlun Vesturlands 2020-2024 Auglýsing á pdf
Menntun fyrir störf framtíðarinnar
Menntaskóli Borgarfjarðar, með stuðningi Sóknaráætlunar Vesturlands, hélt þann 19. maí 2020 stafræna ráðstefnu undir yfirskriftinni “Menntun fyrir störf framtíðarinnar”. Hvernig ætlum við að undirbúa nemendur, skólakerfið og fyrirtækin fyrir hraðar breytingar næstu ára og hefur COVID-19 flýtt þessum breytingum? Nú eru öll erindi ráðstefnunnar aðgegnileg á YouTube síðu skólans. Við hvetjum alla til hlusta á þau frábæru erindi sem fram …
Lilja Björg Ágústsdóttir er nýr formaður SSV
Aðalfundur SSV fór fram mánudaginn 15. júní s.l. Á fundinum var Lilja Björg Ágústsdóttir forseti sveitarstjórnar í Borgarbyggð kosin nýr formaður og mun hún taka við formennskunni af Eggerti Kjartanssyni oddvita Eyja- og Miklaholtshrepps. Fjórir nýir fulltrúar komu inn í stjórn, þau Ástríður Guðmundsdóttir úr Skorradalshreppi, Brynja Þorbjörnsdóttir úr Hvalfjarðarsveit, Davíð Sigurðsson úr Borgarbyggð og Atli Svansson úr Eyja- og …