Nýsköpunarnet Vesturlands stofnað

SSVFréttir

Stofnfundur Nýsköpunarnets Vesturlands (NýVest) fór fram í Breið nýsköpunar- og þróunarsetri að Bárugötu 8-10 á Akranesi síðdegis í gær. Páll S. Brynjarsson framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) setti fundinn og síðan tók Gísli Gíslason formaður undirbúningsnefndar NýVest og fundarstjóri við boltanum og kynnti félagið. Eftir að hefðbundinni stofnfundardagskrá lauk þá ávarpaði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fundinn …

Uppbyggingarsjóður Vesturlands hefur opnað fyrir umsóknir

SSVFréttir

OPNAÐ HEFUR VERIÐ FYRIR UMSÓKNIR Í UPPBYGGINGARSJÓÐ VESTURLANDS ÚTHLUTUN Júní 2022 Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands.      -Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar       Allar upplýsingar um sjóðinn má …

Nýsköpunar- og frumkvöðlasetur opnar í Dalabyggð

SSVFréttir

Miðvikudaginn 30. mars sl. var opnun Nýsköpunar- og frumkvöðlaseturs í Dalabyggð. Setrið er samstarfsverkefni Dalabyggðar við nokkur leiðandi fyrirtæki, stofnanir og samtök. Þar má nefna Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV),  Verkfræðistofuna EFLU, Kaupfélag Borgfirðinga, Bændasamtök Íslands, Arion banka, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskólann á Bifröst, Símenntun og KPMG. Í setrinu er að finna samvinnurými þar sem hægt er að leigja borð, allt …

Stofnfundur NÝVEST

SSVFréttir

Stofnfundur Nýsköpunarnets Vesturlands fer fram í Breið nýsköpunar og þróunarsetri að Bárugötu 8-10 á Akranesi miðvikudaginn 6. apríl og hefst fundurinn kl.15:00.  Auk hefðbundinnar dagskrár stofnfundar mun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla, iðnaðar og nýsköpunarráðherra ávarpa fundinn og þeir Bergur Benediktsson og Árni Þór Árnason munu kynna starfsemi Breiðar líftæknismiðju og starfsemi Fab-Lab á Vesturlandi. Að lokum kynnir Rut Ragnarsdóttir nýja …

Dala Auður fer af stað

SSVFréttir

Um helgina var haldið íbúaþing i Dalabyggð en það markaði upphaf að þátttöku Dalamanna í verkefninu „Brothættar byggðir“, sem er verklag þróað af Byggðastofnun. Meginskilaboðin sem komu út úr kraftmiklu íbúaþinginu var að nauðsynlegt er að auka fjölbreytni atvinnutækifæra og efla það sem fyrir er og eru bættir innviðir; vegir, fjarskipti, þriggja fasa rafmagn og aukið framboð íbúðar- og atvinnuhúsnæðis algjör …

Íbúaþing í Dalabyggð 26.-27. mars

SSVFréttir

Dagana 26. og 27. mars nk. er íbúum, fjarbúum og öðrum hagsmunaaðilum samfélagsins í Dalabyggð boðið til íbúaþings. Með þinginu hefst verkefnið Brothættar byggðir í Dalabyggð. SSV er samstarfsaðili í verkefninu „Brothættar byggðir í Dalabyggð“ og verða fulltrúar frá samtökunum þátttakendur á íbúaþinginu. UM ÍBÚAÞINGIÐ Þeir sem mæta sjá alfarið um að móta umræðuefni og stefnu þingsins, því íbúar og þeirra hagsmunir eru …

Reykholtshátíð tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna

SSVFréttir

Á dögunum voru opinberaðar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna og þar á meðal er Reykholtshátíð 2021 sem tilnefnd er til verðlauna í flokki tónlistarviðburður ársins og hátíðir í flokki sígildrar- og samtímatónlistar. Hátíðin í fyrra var haldin í skugga samkomutakmarkana, en þó náðist að halda hana með eðlilegu sniði á milli covidbylgna. Verkefnið var styrkt sérstaklega í gegnum verkefnið Viðburðir á …