Vífill Karlsson, hagfræðingur hjá SSV og dósent við HA, kynnti frumniðurstöður rannsóknar um búsetuskilyrði til sveita föstudaginn 28. september s.l. SSV fékk styrk úr Byggðarannsóknasjóð til að ráðast í þetta verk og mun rannsóknin standa yfir fram á vor. Nú þegar er fyrirhuguð önnur málstofa í mars 2019 að Hólum þegar fleira liggur fyrir af niðurstöðum rannsóknarinnar. Rannsóknin ber titilinn: Öll él birtir upp um síðir: Hver er framtíðarsýn fólks sem býr í sveitum landsins og hvernig sker hún sig frá þeim sem búa í minni þéttbýlissamfélögum. Hér má heyra erindið í fullri lengd (smellið hér). Erindið er 32 mínútur í flutningi. Hér er frétt sem kom í morgunfréttum RÚV mánudaginn 1. október og byrjar hún 2:40 mínútum eftir að fréttatíminn hefst (smellið hér).