Fram undan er fjölbreytt og spennandi dagskrá á Breið nýsköpunarsetri á Akranesi þar sem nýsköpun, menning, listir og samfélag mætast undir sama þaki. SSV er stoltur samstarfsaðili Breiðar ásamt fjölmörgum öðrum aðilum á Vesturlandi sem vinna að því að efla öflugt atvinnu- og menningarlíf í landshlutanum.
Dagskráin í haust býður upp á fjölbreytta viðburði fyrir íbúa og gesti. Má þar nefna hádegistónleika með Heiðdísi Hönnu Sigurðardóttur, fyrirlestra og listasýningar, uppskeruhátíð býflugnabænda, Matarauð Vesturlands og ýmsa samfélagsviðburði sem skapa vettvang fyrir tengslamyndun, fræðslu og upplifun.
Jafnframt eru opnir tímar í Fab Lab smiðju Vesturlands í hverri viku og reglulegir viðburðir á borð við vöfflukaffi hjá Skúrnum sem hafa notið mikilla vinsælda.
Við hvetjum íbúa, fyrirtæki og aðra áhugasama til að kynna sér dagskrána og taka þátt í því sem höfðar til þeirra. Með fjölbreyttum viðburðum eins og þessum heldur Breið áfram að vera mikilvægur samkomustaður fyrir nýjar hugmyndir, sköpun og samstarf á Vesturlandi.
Nánari upplýsingar um viðburðina má finna á miðlum Breiðar nýsköpunarseturs.
