Í tengslum við komandi umsóknarlotu býður NORA, Norræna Atlantssamstarfið, upp á tvær rafrænar kynningar um verkefnastyrki þriðjudaginn 8. september 2026. Önnur kynningin fer fram á dönsku og hin á ensku. Kynningarnar eru ætlaðar áhugasömum og mögulegum umsækjendum sem vilja kynna sér styrkjamöguleika NORA.
NORA veitir styrki til samstarfsverkefna sem geta numið allt að 500.000 dönskum krónum á ári, í allt að þrjú ár. Ef þú ert með góða verkefnahugmynd og mögulegan samstarfsaðila í öðru NORA-landanna gæti kynningin verið gott tækifæri til að fræðast um fjármögnunarmöguleika fyrir samstarfsverkefni á Norður-Atlantshafssvæðinu.
Á kynningunum verður farið yfir styrkjamöguleikana og umsóknarferlið og þátttakendum gefst jafnframt tækifæri til að spyrja spurninga og fá nánari upplýsingar.
Kynningarfundir
🇩🇰 Kynning á dönsku:
Þriðjudaginn 8. september kl. 10:00
🇬🇧 Kynning á ensku:
Þriðjudaginn 8. september kl. 11:00
Ekki þarf að skrá sig fyrirfram – bara mæta. Öll velkomin!
Hér fyrir neðan má finna tengla á kynningarfundina ásamt nánari upplýsingum.
Næsti umsóknarfrestur hjá NORA er mánudaginn 5. október 2026. Á vef NORA, www.nora.fo, má finna ítarlegar upplýsingar um styrkina, umsóknarferlið og kynningarfundina.
Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra Björnsdóttir, tengiliður NORA hjá Byggðastofnun, í tölvupósti á hannadora@byggdastofnun.is.
