Startup landið – rafrænn kynningarfundur næstkomandi fimmtudag

SSVFréttir

Þann 1. september rennur út umsóknarfrestur í nýsköpunarhraðalinn Startup Landið. Þau sem vilja fræðast um hraðalinn eru hvött til  fylgjast með rafrænum kynningarfundi  sem verður haldinn 27. ágúst.

Startup Landið er nýsköpunarhraðall fyrir frumkvöðla á landsbyggðinni. Að skipulagningu landshlutasamtök sveitarfélaganna  um land all en markmiðið er að skapa vettvang fyrir frumkvöðla og áhugafólk um nýsköpun sem vill láta að sér kveða. Frekari upplýsingar um hraðalinn má finna á startuplandid.is

Hlekkur á rafrænan fund má finna hér.

Ráðgjafatímar Tækniþróunarsjóðs í boði á TEAMS

Tækniþróunarsjóður býður upp á ráðgjafatíma á TEAMS fyrir einstaklinga, fyrirtæki og teymi sem hafa áhuga á að sækja um styrki úr sjóðnum.

Með því að bjóða upp á rafræna ráðgjafatíma á TEAMS geta fleiri nýtt sér þjónustuna óháð búsetu og fengið leiðsögn við undirbúning umsókna.

Landshlutasamtök sveitarfélaganna starfa saman að atvinnuþróun og nýsköpun um allt land, og á fundi þeirra og Tækniþróunarsjóðs fyrr á árinu var rætt um mikilvægi þess að jafna aðgengi að ráðgjöf fyrir umsækjendur óháð búsetu.

Þau sem hafa áhuga á að sækja um í Tækniþróunarsjóð eru hvött til að kynna sér þjónustuna. Hægt er að nálgast upplýsingar um Tækniþróunarsjóð hér.