Nýtt starfsmannahús í Fíflholtum

SSVFréttir

Undanfarið hefur verið unnið að endurnýjun starfsmannahúss í Fíflholtum.

Sorpurðun Vesturlands sem rekur urðunarstaðinn í Fíflholtum samdi við Trésmiðjuna Akur á Akranesi um kaup á nýju húsi sem gegnir hlutverki starfsmannahúss en er einnig þjónustuhús fyrir viðskiptavini urðunarstaðarins.

Húsið var byggt við verksmiðju Akurs og flutt í Fíflholt þar sem það var sett niður á undirstöðuveggi. Þá var byggð tengibygging milli aðalhúss og verkstæðis sem fyrir er á staðnum.

Byggingastjóri var Sæmundur Víglundsson. Lokafrágangur er í gangi en m.a. verður malbikað umhverfis húsið á næstu dögum.

Húsið er stærra en eldra þjónustuhús og er ljóst að með nýja húsinu verður gjörbylting á aðstöðu fyrir viðskiptavini og starfsmenn urðunarstaðarins.