Næsti viðburður í röðinni Forvitnir frumkvöðlar verður haldinn 5. maí kl. 12:00 og að þessu sinni er það Eva Michelsen sem stígur á svið. Eva er með Msc í stjórnun og stefnumótun, Bsc í viðskiptafræði og viðurkenndur bókari með rúmlega 10 ára reynslu af rekstri fyrirtækja og bókhaldi. Hún er einnig raðfrumkvöðull sem rekur meðal annars Rassvasa bókhaldsstofu, Eldstæðið deilieldhús og umboðssöluna viravirki.is auk þess að vera sjálfmenntuð konfekt og kökugerðarkona.
Í erindi sínu mun Eva fjalla um eitt algengasta vandamál sem sjálfstætt starfandi einstaklingar reka sig á þegar kemur að því að verðleggja sig og sínar vörur. Hún mun varpa ljósi á algengustu mistökin og hvernig hægt er að reikna út raunhæf verð sem styðja við sjálfbæran rekstur.
Erindið byggist á eigin reynslu sem og reynslu viðskiptavina sem hafa þurft að taka erfiðar ákvarðanir þegar kemur að verðlagningu og halda rekstri á floti.
Markmiðið er að veita þátttakendum öryggið til að standa við sína verðlagningu og lágmarka áhættuna sem fylgir því að vanrukka enda byggir enginn upp farsælan rekstur ef það er stöðugt verið að borga með honum.
Viðburðurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Ekki missa af þessu spennandi og hagnýta erindi á teams.
