
Íbúum á landsbyggðunum gæti fjölgað um allt að 20%, fækkað um 12% á höfuðborgarsvæðinu en á Vesturlandi gæti íbúum fjölgað um 58% ef sóknarfæri sem felast í óstaðbundum störfum yrðu nýtt í samræmi við skoðanir almennra starfsmanna ríkisins og annarra vinnuveitenda. Þetta og ýmislegt fleira kemur fram í nýrri skýrslu um óstaðbundin störf, sem unnin var af Rannsóknarsetrinu í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst fyrir Samtök sveitarfélag á Vesturlandi. Hér má finna skýrslu.
Þar kemur líka fram að 57% Vestlendinga vinna að einhverju leyti óstaðbundið og veruleg tækifæri eru til frekari aukningar. Niðurstöður benda til þess að aukið svigrúm til óstaðbundinna starfa gæti haft veruleg áhrif á byggðaþróun á Vesturlandi, með fjölgun íbúa og fjölbreyttari vinnumarkaði. Margir myndu kjósa að flytja innan svæðisins eða til þess ef þeir gætu unnið meira óstaðbundið. Þetta undirstrikar mikilvægi stefnumótunar sem styður við slíka þróun og nýtir þau tækifæri sem felast í breyttum starfsháttum.