Í lok mars tók Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúi SSV þátt í vinnustofu á vegum EES samstarfsins í Slóvakíu. Markmið verkefnisins var að efna til samstarfs listafólks, menningarhúsa- og miðstöðva á milli Noregs, Slóvakíu og Íslands.
Ferðast var á milli stofnanna í þremur borgum, Košice, Žilina og svo höfuðborgarinnar Bratislava þar sem menningarhús voru heimsótt og efnt til „hraðstefnumóta“ við heimafólk um hugsanlegt samstarf. Gáfust tækifæri til að kynnast menningarstarfi og ljóst er að hægt er að læra mikið af Slóvökum er varðar uppbyggingu menningarhúsa, en eins og staðan er í dag er ekkert starfandi menningarhús á Vesturlandi samkvæmt skilgreiningu.
Þó svo að byggst hafi upp öflugt stofkerfi menningar í Slóvaíku síðan landið lýsti yfir sjálfstæði eru blikur á lofti. Undanfarið hefur orðið verulegur niðurskurður og kerfisbundnar breytingar sem hafa leitt til uppsagna, breytinga á stjórnun menningarstofnana, skertrar fjármögnunar og aukinnar miðstýringar. Þessar aðgerðir hafa meðal annars beinst að listafólki og stofnunum sem hafa tekið gagnrýna afstöðu, stutt jaðarsetta hópa og lagt áherslu á opna og frjálsa tjáningu. Afleiðingin er sú að menningarkerfi sem áður hafði jákvæð samfélagsleg og efnahagsleg áhrif er nú í verulegri hættu, með mögulegum langtímaáhrifum á þróun og viðgang lista og menningar í landinu.
Óumflýjanlega var heimsóknin lituð af ástandinu, en listafólkið var þó fullt af baráttuanda og var t.d. að efna til listaverkfalla um allt landið.
Þrátt fyrir allt var ferðin afar fróðleg og tengsl á sviði menningar voru mynduð, þannig það er aldrei að vita nema að vestlenskt og slóvenskt listafólk fari í samstarf á næstu misserum.
Sigurrsteinn menningarfulltrúi kynnir það helsta í menningarmálum á Vesturlandi
Kynning á Stanica Žilina-Záriečie menningarmiðstöð í Žilina
Fjölnota listrými undir umferðarbrú í Stanica Žilina-Záriečie
Íslenskt/norskt samstarf!
Menningarverkföll framundan…
Fjölnota listarými í Tabačka Kulturfabrik í borginni Košice
Bjórgarðurinn er hjarta starfseminnar í Tabačka Kulturfabrik!
