Íbúaþróun einna óhagfelldust við sjávarsíðuna

VífillFréttir

Lítill meðbyr virðist hafa verið með sjávarbyggðum á Vesturlandi, og í reynd um land allt, þegar horft er til íbúaþróunar til skemmri og lengri tíma. Íbúaþróun hefur m.ö.o. verið óhagfelldari í fiskveiðisamfélögum en öðrum samfélögum á landinu og óhagfelldari eftir því sem umfang greinarinnar eykst. Þetta gerist þó að laun séu góð í greininni borið saman við t.d. ferðaþjónustu. Íbúaþróun hefur hins vegar verið jákvæðari í sveitarfélögum sem byggja á ferðaþjónustu. Vísbendingar um þetta koma fram í nýrri samantekt SSV. Sjá nánar hér (SMELLIÐ).