Ertu með góða hugmynd? ![Atvinnumál kvenna og Svanni-lánatryggingasjóður](https://encrypted-tbn0.gstatic.com/images?q=tbn:ANd9GcSEcaXaY0Vt2T4Ews1IXwnNm9TminY4ihyqxQ&s)
Vinnumálastofnun/félags-og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna
árið 2025 lausa til umsóknar!
Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 35.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 4.000.000.
Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.
• Verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu.
• Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.
• Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.
• Viðskiptahugmynd sé vel útfærð.
• Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000), ásamt styrkjum til markaðssetningar
og vöruþróunar að hámarki 4.000.000.
Hægt er að sækja um styrk fyrir helmingi af kostnaði verkefnis, nema ef sótt er um styrk gerðar viðskiptaáætlunar.
Umsóknarfrestur er frá 7.febrúar til og með 14.mars og skal sækja um rafrænt á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is
Á heimasíðu verkefnisins má finna nánari upplýsingar um reglur og skilyrði sem þarf uppfylla,
sjá hér https://atvinnumalkvenna.is/styrkir/reglur/
Þær sem fá samþykktan styrk til gerðar viðskiptaáætlunar munu fá tækifæri til að taka þátt í
fyrirtækjasmiðju. Keppt verður um verðlaun fyrir bestu viðskiptahugmyndina en dómnefnd
mun meta kynningar þátttakenda.
Atvinnuráðgjafar SSV veita ráðgjöf við umsóknaskrif.
Nánari tilhögun verður kynnt síðar.
Hægt er að bóka viðtal á heimasíðunni hjá verkefnastjóra sem gefur nánari upplýsingar.
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum!
https://www.facebook.com/atvinnumalkvenna
https://www.instagram.com/atvinnumalkvenna/
Information in english; Atvinnumál kvenna Fréttatilkynning EN