Stjórn SSV ásamt oddvitum og bæjar-og sveitarstjórum á Vesturlandi funduðu með nýjum þingmönnum Norðvestur- kjördæmis í síðustu viku. Tilgangur fundarins var að kynna fyrir þingmönnum helstu áherslur sveitarfélaganna á Vesturlandi í ýmsum mikilvægum málum eins og þær birtast í ályktunum frá Haustþingi SSV 2024. Á fundinum var m.a. farið yfir samgöngumál, raforku og fjarskipti, málefni fatlaðra, löggæslu, heilbrigðismál, öldrunarþjónustu, nýsköpun o.fl.
Góður andi var á fundinum og allir áfram um að skapa gott samstarf á milli sveitarstjórna fulltrúa á Vesturlandi og þingmanna NV-kjördæmis og vinna að framgangi hagsmunamála Vesturlands.