Stjórn SSV ályktar um viðhald á Snæfellsnesvegi (54)

SSVFréttir

Á fundi stjórnar SSV nýverið varð m.a. umræða um vegamál á Vesturlandi, en Pálmi Sævarsson svæðisstjóri Vegagerðarinnar var gestur fundarins.  Í kjölfar um umræðu um viðhald á Snæfellsnesvegi (54) samþykkti stjórn eftirfarandi;

„Stjórn SSV skorar á yfirvöld samgöngumála að veita nú þegar fjármunum til þess að fara í viðhaldsverkefni við Snæfellsnesveg (54).  Viðhald á veginum, sérstaklega á kaflanum á milli Brúarhrauns og Dalsmynnis, þolir enga bið.  Stjórn SSV tekur því undir áhyggjur  Vegagerðarinnar um að ef ekki verður farið í endurbætur fljótlega þurfi að ráðast í aðgerðir eins og að draga úr umferðarhraða til þess að tryggja umferðaröryggi á veginum“