Í vikunni barst jákvætt svar frá Byggðastofnun þar sem fengust 12.850.000kr.- í tilraunaverkefni til að samþætta og opna akstur úr Búðardal í Borgarnes fyrir bæði nemendur og almenning. Þannig verður m.a. hægt að bjóða framhaldsskólanemum í Dalabyggð skólaakstur úr Búðardal í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Markmiðið er að bæta þjónustu við nemendur og almenning sem og að skapa betri nýtingu í rekstri þessara þjónustuþátta.