Nú liggur dagskrá Byggðarástefnunnar fyrir. Byggðaráðstefnan verður haldin dagana 16. og 17. október nk. á Fosshótel Stykkishólmi en yfirskrift ráðstefnunnar er „Byggðaþróun og umhverfismál, hvernig getur blómleg byggð og náttúrvernd farið saman? Að ráðstefnunni standa Byggðastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og Stykkishólmsbær. Dagskrá má sjá hér fyrir neðan. dagskra-byggdaradstefnan-2018-endanleg
Átak um söfnun og endurvinnslu raftækja
Átak um söfnun og endurvinnslu raftækja Hvað verður um rafeindatæki á þínu heimili og þínum vinnustað ? Alþjóðlegt átak verður í söfnun raftækja í október 2018. Laugardagurinn 13. Október verður sérstaklega helgaður átakinu. Ástæða þess að blásið er til átaks í söfnun er sú að rafeinda- og raftæki eru að skila sér í alltof litlu mæli inn til endurvinnslu. Um …
Eggert Kjartansson nýr formaður SSV.
Haustþingi SSV 2018 lauk upp úr hádegi í dag, en þingstörf hófust um hádegisbil í gær. Um 30 sveitarstjórnarmenn af Vesturlandi tóku þátt í þinginu, auk gesta og starfsmanna SSV. Á þinginu var kosin ný stjórn SSV og formaður var kosinn Eggert Kjartansson oddviti í Eyja- og Miklaholtshreppi. Nánari upplýsingar um þingið verður birtar eftir helgina.
Ályktun Haustþings SSV vegna lokunar starfsstöðva Vís á Vesturlandi.
„Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi lýsir yfir gríðarlegum vonbrigðum með þær fréttir frá VÍS að loka eigi öllum starfsstöðvum á Vesturlandi um næstu mánaðamót. Þessi ákvörðun er óásættanleg fyrir viðskiptavini og starfsfólk VÍS á svæðinu sem margir hverjir hafa verið í áratugi í viðskiptum og störfum við og fyrir félagið. Skorað er á sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga á svæðinu að …
Skrifstofa SSV lokuð vegna Haustþings 20 og 21 september.
Skrifstofa SSV verður lokuð fimmtudaginn 20. og föstudaginn 21. september n.k. vegna Haustþings SSV í Bifröst. Ef um áríðandi erindi er að ræða er hægt að hringja í síma 8996920 Sædís.
Dagskrá Haustþings SSV 20 og 21 september 2018
Haustþing SSV 2018 Hótel Bifröst 20 og 21 september Þema þingsins: Velferðarmál Haustþing 2018 – dagskrá
Svanni – lánatryggingasjóður kvenna auglýsir eftir umsóknum
Fréttatilkynning Svanni – lánatryggingasjóður kvenna auglýsir eftir umsóknum Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um lán og lánatryggingar í Svanna-lánatryggingasjóð kvenna. Umsóknarfrestur er til og með 29.10.2018 og má nálgast umsóknir á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is Eingöngu fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um lánatryggingu. Einnig er gerð er krafa um að líkur séu verulegar á …
Viðvera atvinnuráðgjafa á Vesturlandi 2018-2019
Komin er dagskrá fyrir atvinnuráðgjafa SSV á Vesturlandi fyrir veturinn 2018-2019 https://ssv.is/atvinnuthroun/vidveruplan-atvinnuradgjafa/ hægt er að hafa sambandi einnig við atvinnuráðgjafa í síma. Ólafur Sveinsson 8923208 Ólöf Guðmundsdóttir 8980247 Margrét Björk 8642955 Vífill Karlsson 6959907
Opið fyrir umsóknir í Uppbyggingasjóð Vesturlands.
AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM Í UPPBYGGINGARSJÓÐ VESTURLANDS Veittir verða styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar. Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, https://ssv.is/uppbyggingarsjodur-vesturlands er að finna upplýsingar um umsóknarferli, reglur og viðmið varðandi styrkveitingar. Nánari upplýsingar í síma 433-2310 eða senda fyrirspurn á netfangið: uppbyggingarsjodur@ssv.is Frestur til að skila inn umsóknum rennur út á miðnætti 2. október 2018.
Námskeið fyrir kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum á Vesturlandi.
Föstudaginn 7 september s.l. stóð Samband íslenskra sveitarfélag fyrir námskeiði fyrir kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum á Vesturlandi. Yfirskrift námskeiðsins var „Það sem þú þarft að vita sem kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn“. Um 40 sveitarstjórnarfulltrúar tóku þátt í námskeiðinu sem stóð yfir allan daginn. Stjórnandi námskeiðsins var Svanfríður Jónasdóttir ráðgjafi hjá Ráðrík og f.v. bæjarstjóri, en auk hennar voru þeir Tryggvi …