Við leitum að skapandi krökkum í stýrihóp BARNÓ ’26!

SSVBarnó, Fréttir, Menning

Við leitum eftir hressum og hugmyndaríkum krökkum á aldrinum 10–18 ára til að taka sæti í stýrihópi Barnó – BEST MEST VEST! – Barnamenningarhátíðar Vesturlands 2026.

Stýrihópurinn mun taka virkan þátt í undirbúningi hátíðarinnar og fá tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á dagskrá og listræna stefnu hennar. Um er að ræða einstakt tækifæri fyrir börn með áhuga á listum og menningu til að efla sköpunargleði, sjálfstraust og kynnast öðrum krökkum með svipuð áhugamál víðs vegar af Vesturlandi. Börn af erlendum uppruna eru sérstaklega hvött til þátttöku.

Gert er ráð fyrir að halda allt að sex fundi, sem hver um sig verður ekki lengri en 40 mínútur. Flestir fundir fara fram á netinu, en einnig verður stefnt að einum til tveimur staðfundum þar sem þátttakendum verður boðið upp á veitingar og skemmtilegheit.

Skilyrði er að þátttakendur séu búsettir á Vesturlandi og er skráningarfrestur 30. apríl næstkomandi.

Frekari upplýsingar og skráningar fara fram hér.