111 – Heilbrigðisnefnd Vesturlands

admin

111 – Heilbrigðisnefnd Vesturlands

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands
Innrimel 3, 301 Akranes
kt. 550399-2299
 

FUNDARGERÐ 111. FUNDAR HEILBRIGÐISNEFNDAR VESTURLANDS

Fimmtudaginn 20. desember 2012 kl: 09:30. Símafundur.

Á fundinum voru:
Jón Pálmi Pálsson, formaður
Sigrún Guðmundsdóttir
Ragnhildur Sigurðardóttir
Dagbjartur Arilíusson
Trausti Gylfason
Ólafur Adolfsson
 
Á fundinum voru auk nefndarmanna Helgi Helgason framkvæmdastjóri og Ása Hólmarsdóttir sem ritaði fundargerð. Eyþór Garðarson mætti ekki  á fundinn og varamaður ekki boðaður í hans stað. Formaður bauð  fundarmenn velkomna til símafundarins og var síðan  gengið til dagskrár. 
 
Dagskrá
 
1)      Yfirlýsing formanns Heilbrigðisnefndar Vesturlands.
Formaður fór  yfir aðdraganda máls sem verið hefur í gangi á Akranesi undanfarna daga  varðandi starfsskyldur hans sem bæjarritara.  Í yfirlýsingu formanns  kom fram að hann treysti sér ekki  til  að gegna stöðu formanns heilbrigðisnefndar áfram vegna málsins og segði hann því af sér og fól varaformanni nefndarinnar, Sigrúnu Guðmundsdóttur, að taka við formennsku.
 
Formaður þakkaði nefndarmönnum og starfsmönnum HeV  fyrir samstarfið og óskaði öllum gleðilegra  jóla.
 
Jón Pálmi Pálsson vék síðan af fundi og tók Sigrún Guðmundsdóttir við stjórn fundarins.
 
Framkvæmdastjóri  fór yfir málið og eins og það  snýr að heilbrigðisnefndinni.
Umræður fóru fram um greiðslur vegna setu formanns á aðalfundi SSV s.l haust og á öðrum auka fundum.
Heilbrigðisnefnd  samþykkir að greiða ekki að sinni fyrir setu formanns á aðalfundi SSV  meðan að málin eru skoðuð nánar.  Ákvörðun um greiðslu frestað til næsta fundar.
 
2)      Verkslagsreglur  vegna funda nefndarinnar.
Tillaga kom fram í umræðum um lið 1) að nefndin yrði að setja sér vinnureglur vegna  greiðslna fyrir fundarsetu á vegum nefndarinnar.
Samþykkt að fela framkvæmdastjóra  að koma með tillögur að vinnureglum vegna fundasetu og fyrirkomulag þeirra  á næsta fundi nefndarinnar.
 
  
3)      Önnur mál.
-Seiðaeldisstöðin Laxeyri á Húsafelli.- Framhald frá síðasta fundi.
Bréf til HeV  lagt fram frá  Laxeyri ehf,  dagsett 17. desember 2012.
Ákveðið að fá forsvarsmann fyrirtækisins á næsta fund nefndarinnar sem verður í janúar 2013.
 
Fundi slitið kl: 10:05