5, – Markaðsstofa Vesturlands
Stjórnarfundur Vesturlandsstofu ehf.
5. janúar 2009
Mættir: Gísli Ólafsson, Hansína B. Einarsdóttir, Sigurborg Hannesdóttir, Helga Ágústsdóttir og Jónas Guðmundsson sem ritaði fundargerð.
Unnur Halldórsdóttir formaður Ferðamálasamtaka Vesturlands mætti sem/vegna ?
- Fjárhagsáætlun ársins 2009 – Samþykkt með örlitlum breytingum. JG sendir út samþykkta áætlun. Í framhaldi af þessari áætlun verður útbúin aðgerðaráætlun. Einnig þarf að smyrja ferla varðandi upplýsingagjöf sem JG tekur á.
- Húsnæðismál – Eftir að hafa skoðað og rætt húsnæðismál var samþykkt að JG fái samningsdrög fyrir húsnæðið að Sólbakka 2 og m.v. að hann sé til 5 ára.
- Stjórnarmál – hugmynd lögð fram um að svokölluð framkvæmdastjórn starfi næstu 3 – 5 mánuði. Þrír aðilar skipi hana eða einn frá hverjum eignaraðila. Mörg stór verkefni framundan og nauðsynlegt að JG hafi meiri stuðning í daglegu starfi. Ákveðin upphæð (10.000) verði greidd hverjum aðila fyrir hvern fund sem haldin verði vikulega í Borgarnesi. Gísli, Hansína og Helga taka verkefnið að sér.
- Vefmál – JG kynnti og sýndi þá vinnu sem búið er að
í vefnum og allir sammála um að þetta sé mikil bót. Eftir að klára nokkur atriði en JG kemur með dagsetningu á miðvikudag að opnun.gera
Næsti stjórnarfundur boðaður 10.02.09. kl. 12:00 að Hótel Hamri.
Fundi slitið kl. 16:20
Fundargerð ritaði Jónas Guðmundsson