Uppbyggingarsjóður Vesturlands úthlutaði 19 styrkjum til nýsköpunar og atvinnuþróunar í vikunni en sökum aðstæðna í samfélaginu á covid tímum var hætt við að halda Nýsköpunardag og úthlutunarhátíð eins og vant er. Því var ekki um formlega úthlutunarhátíð að ræða að þessu sinni. Alls voru veittir styrkir að upphæð 16.325.000 og alls bárust 24 umsóknir í sjóðinn.
Verkefnin sem hlutu styrk voru:
Lífplast fyrir matvæli úr alginati brúnþörunga | Sigríður Kristinsdóttir | 3.000.000 |
Dúnmjúkar | Queen Eider ehf | 2.300.000 |
Tinsmíði, smíði minjagripa ofl. | Nes sf. / Hafdís Brynja Guðmundsdóttir | 1.000.000 |
Menningar- og söguferðaleið í Dölum | Iceland Up Close ehf. | 1.000.000 |
Hágæða gærur og leður. Framhaldsumsókn. | Sláturhús Vesturlands ehf. | 1.000.000 |
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetur Dalabyggðar | Dalabyggð | 950.000 |
Markaðssetning smáframleiðenda | Ljómalind ehf. | 750.000 |
Rafræktun | Hólshlíð ehf. | 700.000 |
Stofnun og rekstur nýsköpunar- og skrifstofuseturs í Stykkishólmi | Halldór Árnason | 625.000 |
Project MOX | Egill Hansson | 500.000 |
Laufey | Áskell Þórisson | 500.000 |
Dyflissu Meistarar Borgarfjarðar | Samúel Halldórsson | 500.000 |
Öðruvísi upplifanir – Geitalabb, Forystufé og Vörðuganga | Sigríður Ævarsdóttir | 500.000 |
Tröllagarður – uppbygging | Fossatún ehf. | 500.000 |
Gönguleiðakort í Skorradal | Kristín Sverrisdóttir | 500.000 |
Stofnun Streituskólans á Vesturlandi (SV) | Aldís Arna Tryggvadóttir | 500.000 |
Skagafiskur ehf | Skagafiskur ehf. | 500.000 |
Goðheimar | Muninn kvikmyndagerð ehf. | 500.000 |
Útgerðin Ólafsvík – stafræn þróun á tímum Covid | Rut Ragnarsdóttir | 500.000 |