Skýrsla um raforkuöryggi, bætta orkunýtingu og lækkun orkukostnaðar á rafkyntum svæðum á Vesturlandi

SSVFréttir

Út er komin skýrsla sem Blámi, í samstarfi við Gleipni, vann fyrir SSV um hvernig best væri að tryggja íbúum á Vesturlandi betra aðgengi að hagkvæmari og öruggri húshitun.

Sérstaklega er horft til þéttbýlisstaða í Snæfellsbæ og Grundarfjarðarbæjar, auk þess sem horft er til dreifbýlis í heild sinni á Vesturlandi þar sem íbúar þurfa að reiða sig á rafkyndingu.

Markmiðið með skýrslunni var að skoða hvering varmadælur og aðrar orkusparandi lausnir geta hjálpað íbúum og fyrirtækjum að lækka húshitunarkostnað, bæta nýtingu orkunnar og auka öryggi í orkumálum til framtíðar.

 

Skýrslan er hluti af áhersluverkefni Sóknaráætlunar Vesturlands um orkumál á köldum svæðum, en verkefnið er fjármagnað með sérstöku framlagi frá umhverfis, orku og loftlagsráðuneytinu.

Sjá skýrslu: Blámi – Orkumál á köldum svæðum