Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði hlýtur Eyrarrósina 2025

SSVFréttir

Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði hefur hlotið Eyrarrósina 2025, viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefnum á landsbyggðinni. Þetta er í nítjánda sinn sem Eyrarrósin er veitt, en afhending fór fram við hátíðlega athöfn í Alþýðuhúsinu á Siglufirði þann 15. maí, en Alþýðuhúsið hlaut verðlaunin eftirsóttu árið 2023. Verðlaunin voru afhent af herra Birni Skúlasyni, maka forseta Íslands og verndara Eyrarrósarinnar.

Verðlaunin fela í sér 2.500.000 króna fjárstyrk, auk þess sem Sköpunarmiðstöðin fær tækifæri til að standa að viðburði á Listahátíð í Reykjavík 2026 og verður framleitt heimildamyndband um starfsemina. Una B. Sigurðardóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri og stjórnarmaður, tók við viðurkenningunni fyrir hönd Sköpunarmiðstöðvarinnar.

Valnefndin sem fór yfir 34 umsóknir víðsvegar að af landinu, veitti einnig þrenn hvatningarverðlaun til verkefna sem eru yngri en þriggja ára. Verkefnin sem hlutu hvatningarverðlaun Eyrarrósarinar 2025 eru Gletta á Borgarfirði Eystri, Afhverju Ekki í Þingeyjarsveit og Tankanna á Raufarhöfn. Hvert verkefni hlýtur 750.000 króna verðlaun og gjafakort frá Icelandair að andvirði 100.000 króna.

Sigursteinn Sigurðsson, menningarfulltrúi SSV, átti sæti í valnefndinni fyrir hönd landshlutasamtakana, en auk hans voru í valnefnd fulltrúar Listahátíðar í Reykjavík, Icelandair og Byggðastofnunar.

Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Icelandair,  markmiðið með henni er að efla  sýnileika þess fjölbreytta og faglega menningarlífs sem er utan höfuðborgarsvæðisins.

Frá verðlaunaafhendingunni

 

Hr. Björn Skúlason maki forseta með handhöfum og valnefnd Eyrarrósarinnar

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir setur samkomuna í blíðskaparveðri við Alþýðuhúsið á Siglufirði

Frá móttöku vegna afhendingarinnar við Síldarkaffi

Innsetning við Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði