Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) hafa gefið út skýrsluna Kolefnisspor Vesturlands 2024, sem unnin var af Environice ehf. Skýrslan er eitt af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar Vesturlands og liður í markvissri vinnu við að efla þekkingu á loftslagsmálum og styðja við aðgerðir í átt að sjálfbærari þróun.
Í skýrslunni er lagt mat á heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Vesturlandi árið 2024. Heildarlosun landshlutans nemur um 2,39 milljónum tonna koldíoxíðsígilda, eða um 135 tonnum á hvern íbúa. Stærsti hluti losunar má rekja til landnotkunar, sem nemur um 55% af heildarlosun, og til stóriðju á Grundartanga, sem stendur undir um 35%. Losun sem tengist daglegum athöfnum samfélagsins er um 10% af heildinni.
Skýrslan dregur jafnframt fram möguleg tækifæri til samdráttar í losun og leggur til áherslur og aðgerðir sem geta styrkt stöðu Vesturlands í loftslagsmálum til framtíðar.
Föstudaginn 20. febrúar kl. 09:00 verður haldinn rafrænn kynningarfundur þar sem Stefán Gíslason mun kynna helstu niðurstöður skýrslunnar og fara yfir meginatriði hennar. Fundurinn er opinn öllum og eru áhugasamir hvattir til að taka þátt.
Fundurinn fer fram á Teams. Skráningar er ekki þörf en hlekkurinn á fundinn er hér.
