Opinn fundur um línulangir, eignarrétt og endurgjald

SSVFréttir

Mánudaginn 20. apríl kl. 20:00 standa Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) fyrir opnum íbúafundi í Hjálmakletti í Borgarnesi, en þar mun Torfi Jóhannesson kynna samantekt sem unnin var fyrir SSV og SSNV um línustæði, eingarrétt og endurgjald. Í samantektinni er sjónum beint að því hvernig nágrannalönd Íslands; Danmörk, Noregur og Svíþjóð sérstaklega, auk fleiri Evrópu landa, hafa hagað samráðsferli við landeigendur við skipulag og uppbyggingum línustæða og greiðslum til landeigenda fyrir notkun lands undir línustæði.

Markmiðið er að varpa ljósi á ólíkar leiðir, bera saman lagaumhverfi og skoða hvernig nýta megi þessa reynslu til að móta skýrari, réttlátari og nútímalegri umgjörð um slíkar greiðslur hér á landi.

Að lokinni kynningu fara fram pallborðsumræður. Í pallborðinu sitja auk Torfa, fulltrúar landeigenda, Landsnets og sveitarfélaga og verður farið yfir sjónarmið ólíkra hagsmunaaðila og horft til framtíðar í uppbyggingu raforkuinnviða.

Allir velkomnir