Línuívilnun og skeldýrabætur skipta máli

VífillFréttir

Á Vesturlandi skipta skeldýrabætur og línuívilnun miklu máli enda voru þær á bakvið um 13.000 tonna veiði á árunum 2020-2024. Það eru mikil verðmæti og afnám skeldýrabóta og línuívilnunar yrði því mikið högg fyrir útgerðir – sérstaklega á Snæfellsnesi. Ekkert sveitarfélag á landinu fangar eins mikið af botnfisktegundum með skeldýrabótum og Sveitarfélagið Stykkishólmur. Grundarfjarðarbær er þar þriðja í röðinni. Á þennan kvarða er Snæfellsbær þriðja stærsta línuívilnunarsveitarfélag landsins. Þegar vægi allra kerfanna var skoðað og hversu mikinn hlut þó stóðu að baki í heildarafla var Stykkishólmur efst á blaði meðal íslenskra sveitarfélaga í tilfelli Skeldýrabóta. Grundarfjarðarbær og Snæfellsbær voru lægri á þennan kvarða. Um þetta má lesa í nýrri Glefsu sem kom út í gær og í heild sinni er hér (HLEKKUR)