
Í Snæfellsbæ jukust aflaheimildir mest hlutfallslega (29%) á Vesturlandi frá bankahruni, næst mest í Stykkishólmsbæ (25%). Tekið skal fram að hlutdeildin jókst um 8,2% á landinu öllu. Þær drógust saman í öðrum sveitarfélögum á Vesturlandi. Aflaheimildir á íbúa eru mestar í Snæfellsbæ á Vesturlandi og næst mestar þar á landinu öllu. Mestar voru þær á landinu í Grýtubakkahreppi og tvöfalt meiri en í Snæfellsbæ. Næst mestar á Vesturlandi voru þær í Grundarfjarðarbæ en í sjöunda sæti á landinu öllu. Smellið hér til að sjá Glefsuna.