Á hverju ári gefur Markaðsstofa Vesturlands út upplýsingakortið Visit West Iceland sem samstarfsaðilar okkar nýta til að leiðbeina gestum, vekja áhuga og hvetja til lengri dvalar og fjölbreyttrar upplifunar á Vesturlandi. 👉 [Skoða kortið hér]
Eftir heimsfaraldurinn Covid-19 sat eftir lager af úreltum kortum, þar sem gestum fækkaði tímabundið. Í stað þess að láta kortin fara til spillis kviknaði hugmynd – væri hægt að gefa þeim nýtt líf?
Úr varð frábært samstarf við Smiðjuna í Ólafsvík, sem er virkni- og hæfingastöð fyrir fólk með skerta starfsgetu. Þar var tekið vel á móti efninu og það nýtt á skapandi hátt í vöruþróun.
Í dag hafa úreltu kortin umbreyst í fallegar og skemmtilegar vörur – meðal annars púsl, bókamerki, samstæðuspil og domino – unnar í samstarfi við veitingahúsið Matarlist í Ólafsvík.
👉 [Sjá meira um Smiðjuna á Facebook]
Verkefnið er einstakt dæmi um hvernig endurnýting, hugmyndaauðgi og gott samstarf geta skapað verðmæti á nýjan hátt. Það sem áður var úrelt efni hefur nú fengið nýtt hlutverk – að gleðja, fræða, skapa og auðga upplifun gesta á Vesturlandi.
Við hjá Markaðsstofu Vesturlands-áfangastaðastofu- erum afar þakklát fyrir samstarfið og viljum þakka og hrósa öllu því frábæra fólki í Smiðjunni fyrir metnað, sköpunargleði og fagmennsku. Útkoman talar sínu máli.
Þetta verkefni minnir okkur á að góðar hugmyndir geta sprottið úr einföldum aðstæðum – og að með samvinnu má skapa eitthvað sem hefur raunverulegt gildi, bæði fyrir fólk og samfélag.
